21.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 838 í B-deild Alþingistíðinda. (1277)

85. mál, strandferðanefnd til að athuga strandferðirnar og Thore-samninginn

Bjarni Jónsson:

Eg vildi að eins gera fyrirspurn um það, hvort það að Lübeck er nefnd í tillögunni, á að skiljast svo, sem stjórnin sé bundin við að ferðirnar séu farnar til Lübeck, ef félagið alt eins vel vill halda áfram Hamborgarferðunum. Eg tel sjálfsagt að Hamborgarferðunum sé haldið áfram ef þeirra er kostur, því að dálítill rekspölur er kominn á þær og um þær dálítil reynsla fengin. Annars lét eg framsögumann nefndarinnar vita um mann, sem fús væri til samninga um Hamborgarferðir, að Thorefélaginu frágengnu og vona eg að hann láti ráðherra vita um það. Eg taldi réttara fyrir mig að snúa mér um þetta efni til nefndarinnar en stjórnarinnar, ef vera kynni að það mætti henni að gagni koma.

Eg skil ekki hvað menn geta haft á móti b-lið tillögunnar, þar er stjórninni að eins áskilinn réttur til að ganga inn í kaup á skipum, virðist henni þau aðgengileg, en hún er á enga lund bundin til þess að gera það frekar en henni gott þykir. Og ekki er hægt að skylda félagið til þess að selja önnur skip en þessi.

Háttv. framsögumaður hefir misskilið það sem eg talaði um fargjaldahækkun hér á dögunum. Eg er ekki á móti slíkri hækkun yfirleitt, heldur hinu að láta Íslendinga hafa betri kjör en aðra. Mér gazt vel að ræðu hv. 2. þm. Húnv. (Tr. B.), eg er honum alveg samdóma um að óráðlegt sé að fækka viðkomustöðunum, hitt miklu tiltækilegra að fækka ferðunum. Viðkomur strandbátanna spara mönnum mikinn tíma og fyrirhöfn og auk þess er það, að þegar menn eru orðnir þeim vanir hafa þeir fargað þeim tækjum er þeir áður höfðu til flutnings og myndi þjóðinni því bregða stórum við ef strandferðirnar hættu, eða viðkomustöðum yrði fækkað að nokkrum mun. Eg gæti talið fleiri ástæður til stuðnings þessu máli, en út í það nenni eg ekki að fara að þessu sinni. Eg hygg að það sé með öllu óhætt að greiða atkv. með þessari till., þar sem frv. sem hér var til umræðu í deildinni næst á undan þessu máli, mun eiga fram að ganga, og er þeirrar stefnu að landssjóður taki þessar skipagöngur í sína hönd að meira eða minna leyti.