23.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 864 í B-deild Alþingistíðinda. (1305)
96. mál, verkun og sala ullar
Sigurður Sigurðsson:
Mér þykir leitt að þurfa að svara háttv. 1. þm. G. K. (B. Kr.), því satt að segja skyldi eg ekki vel „tendensinn“ í ræðu hans.
Með allri virðingu fyrir þekkingu hans á verzlun og mörgu öðru, veit eg þó með vissu, að hann er enginn „spesialisti“ í fjárrækt eða ullarmati.
Háttv. þm. lagði mikla áherslu á það, að það væri notagildi ullarinnar, sem kæmi mest til greina við sölu hennar og verð. Eg er honum samdóma í þessu; en skilyrði þess að notagildið sé sem mest og haldi sér sem bezt í ullinni, er það, að ullin fái að njóta sín samkvæmt eðli sínu. Og slæm og ill verkun — bleyta og óhreinindi á ullinni—rýrir notagildi hennar, skemmir hana, og hefir þau áhrif, að slík vara fær á sig óorð og selst illa.
Loftslaginu getum við ekki breytt neitt verulega. Og ef það á að bíða eftir því með umbætur á ullarverkuninni, þá er ullarverkunarmálið ótímabært. En það er ekkert vit í að koma með þessar og aðrar eins mótbárur gegn þessari tillögu. Ull af fé, sem lifir undir sömu skilyrðum hvað loftslagið snertir, er mjög misjöfn, eins og allir þeir vita, er bera skyn á þetta mál. Það verður sínu fram að fara, hvað veðráttuna áhrærir og loftslagið útilokar ekki að koma megi verulegum umbótum á í ullarverkuninni. Það er því t. d. engan vegin þýðingarlaust að stuðla að því, að óhreinindin í ullinni verði ekki meiri en 10—12% í stað 25—30% sem hún er nú. Og sé eg ekki annað, en því sé vel varið, sem fer til þess að rannsaka þetta mál. (Björn Kristjánsson: Ullina fáum við ekki bætta, nema með því að breyta loftslaginu). Það má nú vel vera. En við verðum að sætta okkur við það loftslag, sem við eigum við að búa, og byggja rannsóknir okkar og atferli alt í þessum sökum á því. Það má vel vera, að háttv. þm. K. G. (B. Kr.) hefði verið annar og betri maður, ef hann hefði lifað í öðru loftslagi. En um það er ekki að fást.
Að hvergi sé til eins gróf eða grófari ull en hér, nær engri átt. Bæði í Skotlandi, Rússlandi og Síberíu veit eg af fé með jafn grófa ull eða enn grófari. Eg hefi séð ullarsýnishorn þaðan, og þau miklu verri en hér heima.
Eg vona að mótstaða háttv. þm. (B. Kr.) verði tillögunni ekki að neinu tjóni.
Og ef háttv. þm. viðurkennir, að fiskimatsmenn hafi gert gagn, og það hafa þeir gert, því við aðgerðir þeirra hefir batnað fiskverkunin og notagildi fisksins aukist, — þá vona eg, að hann geti líka hugsað sér, að ullarmatsmenn gætu gert gagn.
Annars ætti hann að koma með till. um það á næsta þingi að fiskimatsmannastörfum sé hætt og sýslanirnar lagðar niður.