23.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 875 í B-deild Alþingistíðinda. (1318)
95. mál, ábyrgðarfélög
Flutningsm. (Bjarni Jónsson):
Við höfum komið fram með þessa till. vegna þess, að full nauðsyn er á, að þau ábyrgðarfélög, sem starfa hér á landi, eigi hér varnarþing, því íslenzkum mönnum, sem við þau skifta, er það mjög örðugt og óhentugt, ef þau eiga varnarþing erlendis. Enda er svo komið að sum þessara félaga eiga varnarþing hér á landi.
Oft er mönnum örðugt að ná tryggingarfé því, er þeim ber. Þess vegna er nauðsyn að félögin láti tryggingarfé liggja í íslenzkum banka, svo að hægra sé til þess að ná. Auk þessa mundi þetta styrkja bankana, því starfsfé þeirra yrði meira.
Lífsábyrgðir manna hafa oft og ein att fallið, ef bankar hafa átt að kalla inn iðgjöldin, því að þeir taka að eins við því, sem að þeim er rétt. Þetta mundi síður koma fyrir, ef umboðsmenn félaganna væru búsettir hér og samþ. af stjórnarráðinu, því að þeirra hagur er að hafa sem flesta og ánægðasta viðskiftamenn.
Það hefir verið sagt, að gjaldþrota félög hafi tekið að sér trygginguna hér á landi, og er ilt til þess að vita Ekki þyrfti það að koma fyrir, ef svo væri um búið, sem tillagan fer fram á.
Gott væri að stjórnarráðið tæki þetta mál að sér og gerði frumv. til laga um það til næsta þings.