23.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 882 í B-deild Alþingistíðinda. (1330)
100. mál, fiskveiðagæsla fyrir Suðurlandi
Flutn.m. (Sigurður Sigurðsson):
Eg er þakklátur háttv. 1. þm. Rvk. fyrir það hve liðlega hann hefir tekið í þetta mál. Það er satt að allur Eyrarbakkaflói liggur ekki innan við landhelgissvæðið, og að því leyti getur skeð að tillagan sé ekki svo nákvæmlega orðuð sem skyldi. Þó hygg eg að svo mikil brögð geti ekki verið að því, að það þurfi að valda misskilningi.
Í mánuðunum marz og apríl, að minsta kosti, er aðal veiðiskapartími manna hér syðra, eða vertíðin sem kallað er, bæði við Eyrarbakkaflóann og eins við Faxaflóa og í Vestmannaeyjum. Álít eg því að þann tíma ársins ætti varðskipið að halda sér sem allra mest á þeim slóðum.
Eg vil því ítreka það, að varðskipið ætti að vera til eftirlits, einmitt þessa mánuði ársins á svæðinu fyrir Suðurlandi, alt frá Jökli og suður fyrir Vestmannaeyjar.