13.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 907 í B-deild Alþingistíðinda. (1353)
72. mál, fyrirspurn um innflutning áfengis
Ráðherrann (H. H.):
Eg get ekki betur séð en að svar mitt sé fullskýrt og fullnægjandi í alla staði og þó hv. þm. segi að svarið sé ófullnægjandi, þá er það tómur sleggjudómur sem ekki hefir minstu rök við að styðjast. Mér er nær að halda, að ef þessar umræður hefðu farið fram á síðustu þingum, þá mundi háttv. þingm. hafa talið svör mín góð og gild. En nú sem stendur á eg ekki upp á háborðið hjá honum, hvorki í þessu máli né öðrum, hvað sem veldur, og hafa víst fleiri en eg veitt þessum veðrabrigðum eftirtekt síðustu daga.
Eg endurtek það, að eg álít það fullkomlega ósæmilegt, að þingdeildin kveði upp dóm um, hvort hér sé um brot að ræða. Hún er enginn hæstiréttur og hefir ekkert vald til þess.
Háttv. 1. þm. Rvk (L. H. B.) talaði um að þingið hefði gert sig að dómara þegar rætt var um innsetninu gæzlustjórnarinnar í fyrra. En það er hreinn misskilningur. Þingdeildin á eftir lögum að útnefna gæzlustjóra, og þeim rétti sínum vildi hún láta halda í heiðri. Hún framfylgdi því valdi sem lögin leggja í hendur hennar í því efni. Annað verður ekki af því ráðið, sem þá fór fram. Eg álít rétt, að ef hér á að vera um nokkra rökstudda dagskrá að ræða, þá sé sú er síðar kom, skoðuð sem br.till. við hina fyrri og því borin upp á undan.