21.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 930 í B-deild Alþingistíðinda. (1364)
82. mál, viðskiptaráðunauturinn
Bjarni Jónsson:
„Enginn hefir á spurningunni“, sagði kerlingin. Og sama hefir víst vakað fyrir hinum danska háskólakennara, þm. Sfjk. (V. G.), þá er hann lét sér sæma, að bera upp þessa fyrirspurn. En honum verður þó naumast kápan úr því klæðinu, því að meiri kröfur munu menn, að minsta kosti Seyðfirðingar, gera til hans um rétthermi en til hverrar Gróu, sem gengur í pilsi eður brókum manna á meðal og segir fréttir. Þó eru hans fréttir engu áreiðanlegri.
Í fyrsta lið fyrirspurnar sinnar segir hann frá því, að viðskiftaráðunaut Íslands sé bannað að fást við pólitíska starfsemi með blaðamenzku og þingmensku og nefnir þar til erindisbréf dags. 30. júlí 1909. Í 4. grein erindisbréfsins stendur, hvað honum er bannað:
„Verzlunarviðskifti má hann engin hafa hvorki fyrir sjálfan sig né í annara umboði, né neina aðra atvinnu reka, er komi í bága við framangreint starf hans og skyldur í landsins þarfir“.
Margir munu vita að það er engin atvinna að borga prentun og pappír í blað og vinna kauplaust að því. Gera menn slíkt fyrir sakir áhuga síns á landshag og þjóðar, en eigi til gróða. Enginn innlendur maður mun þora að kalla þingsetuna atvinnu, en vera má að þessi kennari við háskóla Dana gerist þingmaður hér til þess að leita sér atvinnu í sumarleyfinu. — Þingmenskan og blaðið koma ekki í bága við stöðuna, heldur þvert á móti.
Þetta var nú fyrsta Gróu-fréttin.
Sá næsti fróðleikur, sem háskólakennarinn flytur, er sá, að stjórnarráðið hafi ritað utanríkisráðuneyti Dana bréf um blaðamensku og þingsetu viðskiftaráðunautsins, dags. 17. des. 1909. Hvað er nú um þetta?
Hinn 10. nóvember 1909 skrifaði Scavenius utanríkisráðherra Dana íslenzku stjórninni bréf um viðskiftaráðunautinn. Er það prentað í bæklingi mínum, „Skilur haf hjarta og vör“, á bls. 52—53. Segir þar meðal annars:
„Ráðuneytið leyfir sér í þessu sambandi að leiða athygli hins konunglega ráðuneytis að því, að í mörgum, bæði norskum og dönskum blöðum, hafa birzt samtöl við Bjarna Jónsson, þar sem sagt er að hann hafi haft þau orð um sambandið milli Danmerkur og Íslands, sem illa sýnast eiga við stöðu hans, að vera opinber fulltrúi Íslands“.
Hinn 17. des. sama ár svarar Björn Jónsson, þáverandi ráðherra og segir í því bréfi:
„Svo sem greinilega má sjá af erindisbréfinu, liggur stjórnmálastarfsemi alveg fyrir utan verksvið viðskiftaráðunautsins . . . .“
Hvorugt á við þingsetu eða ritstjórn, heldur eingöngu við starfsemi viðskiftaráðunautsins erlendis. En vilji menn efast um að þetta sé rétt, þá er hér skýring ráðherrans sjálfs á bréfinu:
„Eg held eg hafi skrifað þér síðast, hvernig eg skil loforðið um að sneiða hjá pólitík í utanríkisblöðum: sjálfsagt að mega skýra frá því, sem á milli ber við Dani, objectivt en ekki agitatoriskt . . .“ (Í bréfi til mín dags. í Rvík 19/2 1910).
Vona eg að hér með sé fullsannað, að hinn danski háskólakennari vitni hér bandvitlaust til þessa bréfs.
Gróa gamla aftur á ferðinni.
Þá talar sami háskólakennari Dana í sögu Íslands um skilyrði, sem síðasta þing hafi sett fyrir fjárveitingu til viðskiftaráðunauts. Þessi fjárveiting er 31. liður 16. gr. og hljóðar svo:
„Til Bjarna Jónssonar frá Vogi til viðskiftaráðunautsstarfa, samkvmt erindisbréfi frá 30. júlí 1909 alt að 10.000—10.000 kr.
Þar af 6.000 kr. laun hvort árið, og alt að 4.000 kr. hvort árið til ferðakostnaðar eftir reikningi“. (Alþt. 1911, A. 1539).
Hver mundi nú sjá hér skilyrði annar en hinn lærði þm. Sfjk. (V. G.). Hinu munu fáir samsinna honum í, að það sé fjárlagaskilyrði, þótt einn einstakur þm. geri sérstaklega grein fyrir atkvæði sínu.
Enn er gamla konan á ferðinni, í þriðja sinn í fyrsta lið fyrirspurnarinnar. Og annað er ekki í þeim lið.
Þá segir sami vísindamaður að eg dvelji mánuðum saman hér á landi við önnur launuð störf og taki þó full laun. Ef „önnur launuð störf“ á að eiga við eitthvað annað en þingsetuna, þá eru ummæli hans fullkomin ósannindi. En ef hann talar hér um þingsetuna, þá furðar mig að hann skyldi ekki reka sig á annan mann fyr en mig, þann er tekur full laun, þótt hann sitji á þingi.
Eða hve mikið mun háskóli Dana draga af embættislaunum þm. Sfjk. (V. G.) meðan hann hirðir þingfé sitt hér? Hve mikið mundi vera dregið af launum dómstjóra, bæjarfógeta, bankastjóra.skólastjóra og annara starfsmanna landsins sem á þingi sitja?
Seilst hefir hann hér um hurð til lokunnar, blessaður.
Þriðji liðurinn lýsir þó einna bezt vísindanákvæmni spyrjandans. Honum þykir þar ósvinna að eg telji til ferðakostnaðar húsnæði og fæði. Hvað mundi hann vilja telja til ferðakostnaðar? Hyggur hann að Alþingi hafi ætlað alt að 4.000 kr. til fargjalda eingöngu? En hann vitnar hér og í bréf frá stjórnarráðinu. Má það heita furða, hversu víðlesinn hann hefir verið orðinn þá þegar, er hann bar fram fyrirspurnina. En hvernig á nú bréfið við? Það er viðvíkjandi ferðareikningi fyrir ferð frá Hamborg til Parísar. Eftir erindisbréfinu var eg eigi skyldur til að fara út úr þeim fimm löndum, sem þar eru nefnd, (Norðurlönd, England og Þýzkaland) fyrir þær 10.000 kr. sem mér voru þá ætlaðar til launa og alls kostnaðar. Þegar ráðherra því símaði mér að fara til Parísar, með eins dags fyrivara, setti hann í símskeytið þessi orð: „omkostninger refunderes“. Samkvæmt þessu sendi eg svo reikning. Bréf það frá 9. marz 1910, sem fyrirspyrjandinn vitnar til, er um þann reikning og annan samskonar ferðareikning. Allir aðrir menn en þm. Sfjk. (V. G.) sjá það, að þetta bréf kemur als ekki við þeim ferðakostnaðarreikningum, sem eg gef nú samkvæmt fjárlögunum 1911, þar sem skift er sundur upphæðinni í kaup og ferðakostnað.
Ekki er þætt við að þessi sagnfræðingur verði ónákvæmur, þegar um vandamál er að ræða, úr því honum hefir orðið svo mikil leit að fjárlögunum frá 1911 að hann hefir auðsjáanlega ekki fundið þau.
Þá er á hitt að lita, hvers vegna hann bar fram þessa fyrirspurn og í hverju skyni. Af ættjarðarást stafar þessi árás hans ekki, því að hann gerði grein fyrir því ræðu hér á dögunum, að hann bæri fram tillöguna í hefndarskyni fyrir það, að eg hafði bent á þau alkunnu sannindi, að hann er danskur embættismaður. En reiðin er þó ekki næg skýring á fyrirspurn hans, því að maðurinn er geðspakur og ekki ógreindur að eðlisfari og mundi því hafa gefið rúm reiðinni.
Hér mun vera annað í efni. — Bréf þau sem fyr var getið, frá dönsku stjórninni og önnur fleiri sýna með sannindum að stjórn Dana hefir haft auga á viðskiftaráðunautinum. Hefir hún að líkindum óttast, að hér væri byrjun til annars meira. Mér urðu þær undirtektir til gleði, því að minn sómi óx við það og meira var tekið eftir viðskiftaráðunaut Íslands en ella mundi. Jók það á, að dönsk blöð lögðust mjög á móti mér og málstað Íslands. En þar í áttu mikinn þátt hinir íslenzku sjálfboðaliðar, sem fylla dönsk blöð með rógi um menn og málefni heima á Íslandi. Undanfarin ár hafa þeir vaðið uppi í mörgum blöðum þar, Telegrafen, Nationaltidende, Politiken o. fl. Þykir mér sennilegt að háttv. þm. Sfjk. (V. G.), kennarinn í sögu Íslands og bókmentum við háskóla Dana, viti um faðerni á mörgum af þessum greinum. En til dæmis um, hvernig þau krókódílatár eru, sem þessir leiguliðar danskra blaðamanna gráta yfir ættjörð sinni, skal eg nefna, að nýlega stóð í Politiken grein um það, að bæjarfógetanum væri ekki trúandi til að fara með mál, ef skólabróðir hans ætti í hlut, og að mál hefði engan framgang, ef vinir Hannesar Hafsteins væru við það riðnir. Höfundum þessum hefir jafnan orðið tíðrætt um viðskiftaráðunautinn, enda eru allar líkur til að fyrirspyrjandinn hafi nú viljað njósna um hann og hafi hugsað sér gott til glóðarinnar, að ráða nú niðurlögum þessa ófétis viðskiftaráðunauts og taka fyrir trúrra þjóna verðlaun, er hann kæmi í heimalandið, sem hann nefndi svo í ræðu um daginn. Mun hann vænta sér þeirra þótt hann sé eigi annað en sjálfboðaliði.