21.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 940 í B-deild Alþingistíðinda. (1367)

82. mál, viðskiptaráðunauturinn

Fyrirspyrjandi (Valtýr Guðmundsson):

Eg hefi ekki miklu að svara hæstv. ráðherra (H. H.). Hann sagði eins og eg bjóst við að þetta snerti hann lítið. Aftur á móti get eg ekki verið samdóma háttv. þingm. Borgf. (Kr. J.), að stjórnin hafi ekki heimild til að breyta erindisbréfinu enda þótt það sé löggilt með fjárlögunum. Því að ákvæðið í erindisbréfinu um að því megi breyta, er þá líka löggilt á sama hátt. Eg sé ekki hver á að breyta því ef stjórnin má ekki gera það. En sleppum því. Þar sem háttv. fyrv. ráðherra (Kr. J.) hefir haft þenna skilning á þessu atriði afsakar það hann að nokkru leyti. Eg get þó ekki verið honum sammála um það, þó að þetta sé rétt, að ráðunautsstarfið sé þar með tekið undan umsjón og eftirliti stjórnarinnar. Allir opinberir starfsmenn eru háðir eftirliti hennar. Það var því blátt áfram skylda hennar að líta eftir þessu starfi, en það hefir hún því miður ekki gert. Um það ber ræksla starfsins og meðferð fjárins greinilegan vott. Háttv. þingm. Borgf. (Kr. J.) sagði að stjórnin hefði enga heimild til að banna ráðunautnum að fást við pólitíska starfsemi hér á landi. Í erindisbréfinu er honum bannað að fást við nokkuð það sem kemur Í bága við ráðunautsstarfið. Eða getur háttv. fyrverandi stjórn neitað þvÍ að pólitÍsk starfsemi liggi utan við starfsvið hans? Og það kemur þó sannarlega í bága við starfsemi hans sem viðskiftaráðunauts að sitja 7 mánuði ársins hér á landi, og það í gersamlegu leyfisleysi. Það hlýtur að vera brot á erindisbréfinu.

Háttv. þm. Borgf. (Kr. J.) sagði að maðurinn hefði setið á þingi þegar honum var veitt starfið og það skilyrði hafi ekki verið sett að hann legði niður þingmensku. En þó að það hafi verið vanrækt þá að setja þetta skilyrði, sem að sjálfsögðu átti að setja, átti ráðunauturinn að sjá það sjálfur, að þetta tvent gat ekki sameinast. Háttv. þm. Borgf. (Kr. J.) tók það fram að reglulegt heimili viðskiftaráðunautsins væri í Hamborg, og þess vegna hefði stjórnin greitt honum fé til ferðakostnaðar, þótt hann dveldi í Kaupmannahöfn. Mér þykir þessu víkja undarlega við. Eg hefi rakið feril viðskiftaráðunautsins síðan í lok júlímánaðar 1910, og á þeim tíma hefir hann aldrei komið til Hamborgar. Hvernig gat stjórnin látið það viðgangast, að maðurinn kæmi aldrei þangað sem heimili hans var? Var það bara til þess að hann gæti reiknað sér aukreitis fé fyrir ferðakostnað? Og hvernig stendur á því, ef maðurinn er búsettur í öðru ríki, að hann er kjörgengur hér? (Bjarni Jónsson: Þetta er gömul afturganga ) En þó að þessu sé slept þá segir það sig sjálft að pólitísk starfsemi er óheppileg fyrir þenna starfsmann, og hins vegar hitt að það er gersamlega ómögulegt fyrir hann að rækja starfið með því að sitja mánuðum saman hér á Íslandi.

Þá vildu þeir hv. þm. Borgf. (Kr. J.) og hv. þm. Dal. (B. J.) halda því fram að þingmenskan væri ekki launað starf. Það er satt, það heita dagpeningar. En í virkileikanum er það launað starf. Ef við berum saman hvernig þessu er tilhagað hingað og þangað út um heiminn, rekum við okkur á, að í mörgum löndum eru föst laun greidd fyrir þingmensku. (Bjami Jónsson: Eg er ekki þingmaður í þeim löndum.) Þetta er því í raun og veru alveg það sama, og nú er einmitt viða talað um t. d. í Noregi, að breyta þessu í það horf.

Þá hefir hv. þm. Dal. (B. J.) talað um að hvorki þingmenska né blaðamenska séu atvinnugreinir. Hvað sem sagt er um þingmenskuna, þá getur þó enginn neitað því, að blaðamenskan er atvinnugrein. Hann má ekki miða við það þó að honum fari hún ef til vill svo klaufalega úr hendi að hann græði ekki á henni. Blaðamenska hefir orðið mörgum duglegum manni stór gróðalind. Sömuleiðis tók hann það fram, að það væri ekki rétt, að þingið hefði sett það skilyrði fyrir fjárveitingunni að hann fengist ekki við þingmensku eða pólitík. Eg sagði heldur ekki að þingið hefði sett það skilyrði. En sá þingmaðurinn sem reið baggamuninn gerði það, og hefi eg hér í höndunum vottorð um að eg hermdi orð hans rétt, og skal eg lesa það upp með leyfi forseta:

„Þingmaður Seyðfirðinga hefir haft rétt eftir mér orð mín um viðskiftaráðunautinn á sameinuðu þingi 1911.

Alþingi 21/8. 1912.

Sigurður Stefánsson,

þingm. Ísafjarðarkaupstaðar“.

Háttvirtur þingmaður Dal. (B. J.) sagði, að ekki væri vani að draga frá launum embættismanna, þótt þeir sitji á þingi, hvorki mín né annara. Eg fyrir mitt leyti er nú hér í sumarleyfi mínu, og er ekki vani að draga frá launum manna undir þeim kringumstæðum, en annars gildir það um opinbera starfsmenn yfirleitt, að þeir verða að sjá embættum sinni borgið, meðan þeir sitja á þingi. En um viðskiftaráðunautinn er alt öðru máli að gegna, en aðra opinbera starfsmenn. Hann má ekki vera annarsstaðar en þar sem starf hans heimtar, því að hann getur ekki sett annan mann í sinn stað, og það kemur fram í erindisbréfi hans, að hann á að vera í útlöndum, á Norðurlöndum, Englandi og Þýzkalandi. Það, sem svarað hefir verið, er svo lélegt og veigalítið, að eg þarf ekki að svara því frekar. En eg get ekki álitið að stjórnin hafi haft nægilegt eftirlit með þessum manni, og þótt hún kunni að hafa nokkra afsökun í skilningi sínum á fjárveitingu síðasta þings, þá er það ekki ekki nóg. Eg leyfi mér því hér með að afhenda hæstv. forseta rökstudda dagskrá, sem eg vil biðja hann að bera undir atkvæði að umr. loknum, og sem brýnir fyrir stjórninni að gæta hans betur eftirleiðis.

Eg vil enn taka það fram, hve nauða skaðlegt það er, að viðskiftaráðunauturinn fáist við pólitík. Það hlýtur að spilla fyrir starfi hans og gera hann grunsamlegan, enda er það alstaðar regla, að slíkir menn mega það ekki. Auk þess sem það er ómögulegt, eins og eg hefi áður sagt, ef hann á að eiga heima í Hamborg, að hann megi þá rækja þetta starf hér. Og svo er blaðamenskan. Fjöldi manna forðast hana og alla pólitík vegna starfa sinna, og hér er alveg sérstaklega ástatt um afstöðu þessa manns gagnvart útlendum ríkjum, svo að blaðamenska hans getur orðið því hættulegri en ella. Sá maður verður að vera hlutlaus í stjórnmálum.

Skal eg svo ekki fjölyrða meira um þetta, en leyfi mér að afhenda hæstv. forseta dagskrána.