24.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 968 í B-deild Alþingistíðinda. (1385)

94. mál, notkun lánsheimildar

Jón Ólafsson:

Herra forseti! Eg stend að eins upp til þess að bæta þeirri spurningu við ummæli hv. flutningsm., hvernig á því standi, að þau 70—75 þús. kr. sem ógreiddar hafa verið Landsbankanum enn þá af láni því, er landssjóður fékk til að kaupa veðdeildarbréf, hafa enn ekki verið notaðar í þessum tilgangi. Hafi það fé verið notað til annars, er það heimildarlaust, því að landstjórnin fékk að eins heimild til að taka þetta fé að láni til þessa eina tilgangs, en einskis annars.