29.07.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 972 í B-deild Alþingistíðinda. (1392)

7. mál, yfirsetukvennalög

Halldór Steinsson:

Frv. þetta er aðallega komið fram fyrir áskoranir fjölda yfirsetukvenna víðsvegar um land og það er ekki hægt að segja, að þær áskoranir séu ástæðulausar. Yfirsetukvennalögin frá 1875 eru úrelt og fullnægja alls ekki þeim kröfum sem yfirsetukonur nútímans gera með fullum rétti. Það eru ekki eingöngu laun yfirsetukvenna sem hér er kveðið á um, heldur og margt viðvíkjandi skyldum þeirra og starfsviði — ný ákvæði sem ekki eru í gömlu lögunum. Yfirleitt tel eg frumv. mjög til bóta, þó að eg hins vegar felli mig ekki við það að öllu leyti. Það hefir gengið í gegnum Ed., og verið breytt þar og felli eg mig vel við flestar þær breytingar.

Því verður ekki neitað, að þetta er nauðsynjamál sem snertir þjóðina í heild sinni, og á það því fyllilega skilið, að því sé vel tekið. Eg leyfi mér að styðja tillögu háttv. þm. Ak. (G. G.), að 5 manna nefnd verði sett í málið að umr. lokinni.