09.08.1912
Efri deild: 19. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 126 í B-deild Alþingistíðinda. (140)
36. mál, sala á eign Garðakirkju
Steingrímur Jónsson:
Í frumv. því, er hjer liggur fyrir, er ráðgert að selja stóreign, er landið á, og tel jeg, að betur hefði farið á því, að slíkt mál hefði komið frá stjórnarráðinu.
Síðan prestalaunalögin 1907 komust á, eru prestar launaðir úr landssjóði (prestalaunasjóði); allar afurðir af kirkjueignum renna því í prestalaunasjóð. Þess vegna er það, að kirkjueignirnar eru nú landseignir, og það vald, er fer með þær, er stjórnarráðið en ekki kirkjustjórnin.
Háttv. flm. gat þess, að farið hefði verið með málið til stjórnarráðsins, og það vísað því frá, en jeg efa, að þetta sje rjett hjá honum. En hafi stjórnarráðið vísað málinu frá sem því óviðkomandi, þá hefur það gert rangt, því það á að meðhöndla slík mál, en ekki biskup, er lítur meira á hag kirknanna en landssjóðsins.
Jeg álít, að það sje rjett gert, að selja bæjarfjelaginu land þetta; alt öðru máli væri að gegna, ef ræða væri um að selja það einstökum mönnum. Hafnarfjörður hefur mest not af landinu, og á þess vegna að fá það, en hann á að fá það eftir þeim almennu reglum, er gilda um kirkjujarða- og þjóðjarðasölu og fyrir sannvirði.
Þegar sala Húsavíkur var samþykt hjer á alþingi 1911, var slegið fastri reglu um slíka jarðasölu; þá var að eins tekið fram minsta verðið, er stjórnarráðið mætti selja eignina fyrir, eftir það að hún hafði verið virt. Sömu reglu álít jeg að eigi að fylgja hjer, og breyta frumvarpinu í þá átt; jeg vil þess vegna leggja til, að 3 manna nefnd sje kosin til að athuga málið, að umræðu lokinni.