19.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 983 í B-deild Alþingistíðinda. (1408)
7. mál, yfirsetukvennalög
Framsögum. (Eggert Pálsson):
Eg hefi sem framsögum. nefndarinnar ekkert verulegt að segja. Það hefir komið fram breytingartillaga á þgskj. 295 frá háttv. þm. Ak. (G. G.) og er hún gerð í sambandi og í samráði við nefndina, svo hún hefir ekkert við hana að athuga.
Aftur á móti hafa komið fram breyt.till. frá háttv. þm. Dal. (B. J.), sem mér skiljast vera samskonar og brtill. hans í þessu máli við síðustu umræðu, og verður því afstaða nefndarinnar eðlilega hin sama nú eins og þá.
Reyndar eru flestar brtill. þannig, að nefndin leggur enga áherzlu á hvort þær verða samþyktar eða ekki. Það er að eins 2. brtill. sem er efnisbreyting. En þar heldur nefndin fast við sitt og getur þess vegna ekki lagt til að tillagan verði samþykt, en vitanlega ræður deildin því hvað hún gerir.