17.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 996 í B-deild Alþingistíðinda. (1427)
6. mál, stofnun yfirsetukvennaskóla í Reykjavík
Framsögum. (Jóh. Jóhannesson):
Það er að eins lítið sem eg þarf að taka fram fyrir hönd nefndarinnar; málið er nægilega skýrt í nefndarál. Frv. var lagt fyrir þingið af stjórninni eftir tillögum landlæknis, og hefir hann eins og hans er vandi, gert skýra grein fyrir nauðsyninni á þessari skólastofnun í tillögum sínum til stjórnarráðsins, sem prentaðar hafa verið og útbýtt meðal þingmanna.
Út af ummælum hv. þm. N.-Þing (B. Sv.) skrifaði nefndin forstöðumanni læknadeildar háskólans, próf. Guðm. Magnússyni og spurði hann hvort vandkvæði mundu vera á því, að læknadeildin tæki að sér kensluna í yfirsetukvennafræði, og hvort þá þyrfti að auka kenslukrafta deildarinnar eða það mundi hafa í för með sér aukin útgjöld úr landssjóði. Svar prófessorsins, sem prentað er í nefndarálitinu, er á þá leið að hann sjái ekki nokkurn veg til þess að læknadeildin geti tekið þessa kenslu að sér, án þess að aukið sé við kenslukrafta hennar, og nýr kennari kostar 3.000 kr. á ári eins og menn vita.
Nefndin sér sér ekki fært að leggja það til að skipaður verði nýr kennari við háskólann, og er því eigi nema um tvent að velja, annaðhvort að láta það fyrirkomulag sem nú er á kenslunni halda sér, eða að stofna nýjan skóla eins og stjórnin og landlæknir hafa lagt til. En nú er fyrri leiðin ekki fær. Samkvæmt núgildandi lögum hvílir engin skylda á landlækni að hafa þessa kenslu á hendi. Með lögunum frá 17. des. 1875 var honum gert að skyldu að kenna yfirsetukonum, en með lögunum frá 1894 var kenslan lögð til læknaskólans. Þegar svo þau lög voru úr gildi numin með háskólalögunum, þá gleymdist að ráðstafa kenslunni í yfirsetukvennafræði. Landlæknir hefir því ekki að lögum neina skyldu til að hafa þessa kenslu á hendi, og hann hefir lýst yfir því, að hann vilji ekki halda henni áfram nema sérstakur skóli verði stofnaður. Nefndin sér heldur ekki að neitt sé til fyrirstöðu að svo verði gert. Þessi skólastofnun mundi, í sambandi við bætt launakjör yfirsetukvenna, verða til þess að auka aðsóknina að kenslunni, svo að meiri trygging yrði fyrir því, að alt af yrði nóg af hæfum yfirsetukonum, og umdæmin þyrftu þá ekki að standa auð eins og nú á sér víða stað.
Nefndin hefir líka athugað launaspursmálið, og getur ekki fallist á að laun landlæknis samkv. frumv. séu of há. Starfið er mjög þýðingarmikið og þarf því að borga það sómasamlega. Og séu þessi laun borin saman við laun aukakennara við háskólann, þá er síður en svo að þau séu of há.
Nefndin ræður því hv. deild til að samþykkja frumv., og hún felst á þær breytingar sem hv. Ed. hefir gert á því, sem sé hækkað námsstyrk lærimeyja og lækkað þóknunina til ljósmæðra í Rvík fyrir verklega tilsögn.