20.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 999 í B-deild Alþingistíðinda. (1432)
6. mál, stofnun yfirsetukvennaskóla í Reykjavík
Framsm, (Jóhannes Jóhannesson); Það er tekið fram í nefndarál. á þgskj. 219 í bréfi frá forstöðumanni læknadeildar háskólans, að kensla í ljósmóðurfræði fari fram við háskólann í Khöfn, en það er ekki rétt nú orðið, því að síðan ríkisspítalinn var bygður, er hún flutt til einnar deildarinnar þar, og hefir yfirlæknir þeirrar deildarhana á hendi, en hann er ekki við háskólann riðinn lengur, svo að þetta getur ekki verið meðmæli með brtill. hv. þingm. N.-Þing. (B. Sv.).
Nefndin var þó á því, að leggja þessa kenslu undir háskólann, ef það gæti orðið án verulega aukinna útgjalda fyrir landið, en þar sem formaður læknadeildarinnar færði rök að því, að það væri ekki gerlegt, nema kostað væri upp á nýjan kennara við háskólann, þá fanst nefndinni það ógerningur, að leggja það til.
Eg skal játa það, að upplýsingarnar um störf kennaranna við læknadeildina benda til þess, að nauðsynlegt verði að auka kenslukraftana, og að þá gæti komið til mála að breyta þessum lögum í þá átt, að færa kensluna til háskólans, en meðan það er ekki gert, er ekki gerlegt að samþ. brtill. 318. Það verður að gæta vel að því, að landlæknir hefir enga lagaskyldu til þess, að taka að sér þessa kenslu, og þingið getur ekki neytt neinu því starfi upp á mann, sem hann ekki vill taka að sér. Og landlæknir hefir lýst yfir því, að hann vilji ekki taka þetta að sér, ef þetta frumv. nær ekki fram að ganga óbreytt.
Viðvíkjandi síðari brtill. á þskj. 318 skal eg geta þess, að borgunin er ekki eins há, hvað þá hærri að tiltölu, en sú sem kennararnir við læknadeildina fá nú. Kenslan í ljósmóðurfræði heimtar ekki færri tíma, en kenslan við læknadeildina í tannsjúkdómum, augnsjúkdómum og nef- og hálssjúkdómum o. s. frv. Þingið getur því ekki látið sér sæma að færa kaupið niður úr þessu, og einkanlega furðar mig á að sjá þessa uppá stungu frá háttv. þm. N.-Þing. (B. Sv.), sem ekki er ætíð svo hlífinn við landssjóðinn.
Eg verð því fyrir nefndarinnar hönd að leggja það til, að frv. verði samþ. óbreytt.