20.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 1003 í B-deild Alþingistíðinda. (1435)
6. mál, stofnun yfirsetukvennaskóla í Reykjavík
Lárus H. Bjarnason:
Hv. frsm sagði að enginn vafi væri á því að skyldan til að hafa þessa kenslu á hendi hefði hvílt á landlækni árið 1887. En þá hefir hann líka þessa skyldu nú, því honum var falin þessi kensla sem landlækni en ekki sem forstöðumanni læknaskólans. En þó að landlæknir væri ekki skyldur til að hafa þessa kenslu á hendi, þá er enginn vafi á því, að þá mætti jafnfæran mann t d. þann háskólakennara, sem nú kennir stúdentum yfirsetufræði, til þess að kenna yfirsetukonum fyrir sömu borgun og landlæknir hefir nú. Hér er því að eins um fastan bitling til handa landlækni að ræða Hv. þm. sagði að hann hefði ekki búist við, að eg sem hefði 4.000 kr. í árslaun fyrir 8 stunda kenslustarf á viku mundi telja 1.000 kr. of hátt fyrir þessa kenslu. Eg sagði ekki að 1.000 kr. væri of hátt fyrir þessa kenslu í sjálfu sér, heldur sagði eg að ástæðulaust væri að borga landlækni svo mikið, þar sem hann hefir 4.000 kr. undir og er skyldur að hafa kensluna á hendi. Þá er ekki mest á það að líta, hversu margar stundir háskólakenari kennir, enda get eg frætt hv. þm. um það að sumir kennarar hafa færri stundir en eg. Það er hreinn hvíldartími fyrir mig að kenna á við það erfiði að búa mig undir. Eg býzt við að eg búi mig undir kenslustundirnar eins mikið og margir stúdentarnir. Eg skammast mín ekki fyrir að segja það, að mestur hluti dagsins fer til undirbúnings undir kensluna, kunnátta mín er ekki meiri en þetta. En landlæknir þarf engan undirbúning til að geta kent yfirsetukvennafræði.