24.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 1009 í B-deild Alþingistíðinda. (1444)
6. mál, stofnun yfirsetukvennaskóla í Reykjavík
Bjarni Jónsson:
Eg ætla ekki að gerast banamaður þessa frv., þótt ekki sé það fyrir þær sannfærandi ástæður, sem háttv. framsögum. (Jóh. Jóh.) flutti, og vil eg því ekki svara honum, nema að því leyti sem hann virtist vera feginn þeim nirfilshætti, sem nú á að beita við háskólann. Það er auðsætt, að það er í gróðaskyni, að róið er á móti því, að nýr maður verði skipaður kennari við læknadeildina, þótt allir viti að það er nauðsynlegt, eins og sjá má á bréfi Guðmundar Magnússonar. En það er von, að þeir raupi af því að þeir vilja drepa þessa stofnun með nirfilshætti. En með því að auðið er að breyta lögunum seinna, vil eg þó greiða frv. atkv.
Enn vil eg og taka það fram, að það er ekki á minni ábyrgð þótt vitnað sé í lög sem eru ekki til; eg hefi ekki mátt á við 30 bræðinga eða vér 3, þar sem 10 eru um 1. En það er fákænlegt að kalla það sparnað að vilja veita fé til nauðsynlegrar kenslu. Hér snýr öfugt við. Þeir þykjast ætíð líta á hag landsjóðs, án þess að gæta nokkuð að því, hver sé hagur landsins og þarfir landsmanna.
Þetta læt eg mér nægja að segja um atferli þeirra alment.