09.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 1020 í B-deild Alþingistíðinda. (1462)

20. mál, vatnsveita á Sauðárkróki

Flutningsm. (Ólafur Briem):

Það virðist eins og þetta frumv. mæti nokkuð örðugum undirtektum. Málið er svo vaxið, að þess var farið á leit við stjórnarráðið á síðastliðnum vetri að það bæri fram sérstakt frumvarp um þessa vatnsveitu eða þá alment frv. um vatnsveitur í kauptúnum. Þessari málaleitan var ekki sint af stjórnarráðinu, heldur vísað aftur með þeim ummælum, að bezt væri að setja sérstök lög fyrir hvert kauptún. En nú eru svör stjórnarinnar alveg gagnstæð. Eg mundi heldur vilja láta taka málið út af dagskrá heldur en að það yrði felt, en með því að óvíst er um afdrif frv. á þgskj. 115 og þetta frv. hins vogar bráðnauðsynlegt, get eg þó ekki orðið við því að taka það aftur, og vona að því að minsta kosti verði leyft að ganga til 3. umræðu.