16.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 1037 í B-deild Alþingistíðinda. (1475)
61. mál, útflutningsgjald af fiski, lýsi o. fl.
Benedikt Sveinsson:
Það verður ekki annað sagt, en að þetta sé nýstárleg aðferð af hálfu Ed., þar sem hún leyfir sér að taka til meðferðar og ráða til lykta máli sem lagt hefir verið fyrir Nd. og var í nefnd þar. Þetta er gagnstætt allri þingvenju og þingsköpum, þótt það sé ekki bannað þar með beinu ákvæði, sem stafar einungis af því, að mönnum hefir ekki komið til hugar að slík fjarstæða gæti átt sér stað. Háttv. 2. þm. S.-Múl. (J. Ó.) sýndi ljóslega, að slík aðferð væri brot gegn heilbrigðri skynsemi og leiddi rök að því, hversu illa það getur komið heim, ef sama mál er samtímis til meðferðar í báðum deildum og hefði mátt sýna það með fjölda mörgum öðrum dæmum; en það er óþarfi; þetta er svo augljóst, enda er þetta gerræði Ed. nýung í þingsögunni. Ed. hefir í öðru atriði sýnt þessari deild ókurteisi og gerræði, þar sem hún hefir nú í dag felt nær umræðulaust mikilsvarðandi mál, sem búið var að samþykkja hér í deildinni.
Mér finst því, það eitt hefði verið, rétt, að vísa þessu máli frá umræðum þegar er það kom hingað. En úr því það var ekki gert, þá ætti að minsta kosti að skapa því aldur nú, svo að það fari ekki lengra en til 1. umr. Deildin ætti að bíða eftir því frv., sem löglega er hingað í deildina komið og getur verið til 2. umr. á morgun. En þó að ekki væri nú því til að dreifa, að þetta frv. væri ólöglega inn í deildina komið, þá er það þó sá gallagripur, að rétt er að fella það engu að síður, eins og nefndin hefir lagt til einróma. Í fyrsta lagi er það, að eina ákvæðið, sem komið gæti til mála að samþykkja, þetta um tollinn á síldarlýsi, það er óþarft, sökum þess að alt lýsi er tollað áður. En ef sú er tilætlunin, að hækka toll á þessu lýsi úr 30 aurum upp í 50, eins og í frv. stendur, þá er það ranglátt, því að síldarlýsi er framleitt með miklu meira kostnaði en aðrar tegundir lýsis, en þó ekki verðmætara en þorskalýsi, að því er háttv. þm. Ak. (G. G.) hefir sagt. Verksmiðjur þær, er lýsið vinna úr síldinni, eru mjög dýrar og hæpið að þær beri sig. Að minsta kosti töpuðu þær stórfé í fyrra. Það er því óráð, að elta slíkar stofnanir með háum tollum, og má ekki gleyma því, að landinu er hagur að því að þær starfi hér. Útvegsmenn geta selt þeim skemda síld, sem þeir geta ekki komið í verð að öðrum kosti.
En verri eru ákvæðin um að leggja toll á fóðurmjöl, fóðurkökur og áburðarefni, sem unnin eru úr fiskúrgangi, því að þar er verið að leggja á varning, sem ekki er til. Þetta er hinn svo nefndi áhugatollur. Eg hefi það fyrir satt, og get borið fyrir því merkan mann, er látið hefir þess getið á prenti nýlega, að útlendur maður, sem ætlaði sér að stofna hér verksmiðju til niðursuðu á fiski og kjöti, hætti við það, er hann komst að því, að líklegt væri, að Alþingi Íslendinga mundi leggja toll, máske mjög tilfinnanlegan, á niðursuðuvörurnar. Það þarf varla að útskýra það, að landsmönnum væri hagur að því að hér væru stofnaðar verksmiðjur, er hagnýttu fiskúrgang. Í fyrsta lagi væri með því stofnuð ný atvinna hér, í öðru lagi mundu slíkar verksmiðjur auka þrifnað í veiðistöðvunum, þar sem nú víða mikill óþrifnaður að fiskiúrgangi, sem liggur í hrönnum í fjörunum. Í þriðja lagi framleiða slíkar verksmiðjur vörur, sem landinu gæti orðið gagn að, eins og fiskikökur og áburðarefni. Enn er það, ef slíkar verksmiðjur komast á stofn, þá kemst fiskiúrgangur í nokkurt verð, og mundi þá útvegurinn bera sig betur, gæti ef til vill stundum munað því, að útgerðarfélag, sem ekki ber sig nú, gæti flotið, ef það hefði dálitlar tekjur af úrgangi þessum, sem nú er verðlaus og verri en ónýtur.
Auk þessa má minna á það, að verksmiðjurnar mundu gjalda hér öll almenn gjöld, svo sem tekjuskatt, húsaskatt, aukaútsvar o. s. frv.
Það er því að öllu leyti mjög misráðið að fara fyrirfram að leggja tolla á þessar vörur, sem ekki eru til. Slíkt miðar ekki til annars en að aftra því, að fyrirtækin verði stofnuð, því að þótt þessi tollur sé ekki ýkjahár, þá sýnir hann þó ágirnd löggjafarvaldsins íslenzka og getur fælt útlenda menn frá því að leggja fé í þessi tvísýnu fyrirtæki. Þeir geta búist við, að Alþingi leggist á fyrirtækin með hærri sköttum síðar meir. Það er sannarlega ekki of mikil atvinna eða framfarafyrirtæki í landinu, þótt löggjafarvaldið fari ekki að vaða út í sjóinn á móti þeim, eins og grenjandi ljón til þess að bæja þeim frá landinu. Eg legg því til að frumvarpið verði felt.