16.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 1053 í B-deild Alþingistíðinda. (1483)

61. mál, útflutningsgjald af fiski, lýsi o. fl.

Lárus H. Bjarnason:

Hæstv. ráðherra hélt þvi fram að sá sem fengi manni eitthvert vald gæti aftur tekið það af manni og deild þannig tekið mál af nefnd, en hefir ráðherra þá aldrei

heyrt getið um óafturkallanlegt umboð, þegar deildin skipar nefnd veitir hún henni óafturkallanlegt umboð til að fara með málið. Samkv. 17. gr. þingskapanna getur deildin ekki tekið það umboð af nefndinni, sem hún hefir falið henni. Annað dæmi má og benda á. Samkv. 4. gr. stjórnarskrárinnar skipar konungur yfirdómara sem aðra embættismenn, en samkv. 44. gr. getur hann þó ekki svift þá embætti. Þeir verða ekki sviftir því nema með dómi.