21.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 1070 í B-deild Alþingistíðinda. (1513)

59. mál, þingfararkaup alþingismanna

Matthías Ólafsson:

Hr. forseti! Hv. þm. N.-Þing. (B. Sv.) talaði um frv. þetta með háði og galsa. Það hefði máske átt við, ef hann hefði talað við kjósendur sína í N.-Þing. (B. Sv.) en hér átti það ekki við, því málið er alvarlegt. Eg er sannfærður um að háttv. þm. þætti þetta kaup ekki nóg, ef hann ætti að sitja á þingi alla daga, þó hann máske metnaðar vegna vilji láta sér nægja það stund og stund. Kaupið er svo lítið, að það væri betra að fara í „Klóakinn“ hérna í læknum og vinna þar eins og óbreyttur verkmaður en að sitja á þingi.

Þetta frv. miðar að því að bæta hag manna í framtíðinni, og ef einhverjum kæmi til hugar að væna okkur þess, að við vildum draga okkur fé með því að samþykkja frv., þá er ráð til að koma í veg fyrir það, og ráðið er að ákveða, að lögin skuli ekki ganga í gildi, fyr en eftir næstu kosningar. Eg legg til, að það ráð verði tekið. (Bjarni Jónsson: Því má frv. þá ekki bíða næsta þings?).

Ekki trúi eg því, að menn kjósi frekar Reykvíkinga, þó þeir verði 2—3 kr. ódýrari á dag, enda tæpast það mannval hér, að ekki sé nóg, jafn gott eða betra annarstaðar.

Eg álít mjög heppilegt að fastákveða ferðakostnað þingmanna, því það getur komið í veg fyrir þref um það á hverju þingi og óánægju utan þings — að eg ekki segi deilur og róg.

Eg greiði því atkvæði með frv.