23.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 1071 í B-deild Alþingistíðinda. (1516)

59. mál, þingfararkaup alþingismanna

Sigurður Sigurðsson:

Það er óneitanlega dálítið óviðfeldið, að vera að flytja frumv. um hækkun þingfararkaups alþingismanna samtímis og raddir ganga fjöllunum hærra um að fjárhagsástand landssjóðs sé slæmt, og verið er að leita ráða til að bæta það. Eigi að síður skal eg kannast við, að töluverð sanngirni mælir með hækkuninni, að því er þá mun snerta, sem búsettir eru utan Reykjavíkur. En því er ekki að leyna að þetta frv. er afleiðing af breytingunni á samkomutíma Alþingis.

Eg hefi ekki fyllilega getað áttað mig á 2. gr. frv., viðvíkjandi ferðakostnaði þeirra þingmanna, sem búsettir eru utan Reykjavíkur, eða borið saman einstaka töluliði þar, en eftir fljótu áliti geri eg ráð fyrir, að nokkurt samræmi sé þar á milli. En mér dylst þó ekki að ferðakostnaðurinn er nokkuð hátt reiknaður úr ýmsum kjördæmum. Með því að þetta mál hefir ekki verið í nefnd hér í deildinni og þingmenn þar afleiðandi hafa ekki áttað sig á því svo sem skyldi, álít eg mikið spursmál. hvort rétt sé að afgreiða það á þessu þingi.

Viðvíkjandi 1. gr. frv. hefi eg leyft mér að koma með brtill. á þgskj. 372. Hún er ekki mikil fyrirferðar, hógvær og sanngjörn, og skal eg nú reyna að færa ástæður fyrir því.

Færsla þingtímans frá vetri til sumars er verk þeirra þingmanna, sem búsettir eru í Reykjavík, og skal eg ekki saka þá um það, þó þeir hafi beitt sér fyrir það, því að það er kunnugt, að þingsetan kemur mjög í bága við dagleg störf þeirra að vetrinum. En hins vegar er það ljóst, að þessir sömu menn, Reykjavíkurbúar, leggja ekkert í sölurnar fyrir þingsetuna á sumrin. Fæstir þeirra þurfa þá nokkru verulegu til að kosta til þess að starf þeirra sé rekið, og sumir hafa þá frí, eins og t. d. kennarar og eru alveg lausir við annir af starfi sínu. (Jón Jónsson Rv.: Þeir nota fríið til undirbúnings undir veturinn). Fyrir því miðar brt. mín að því, að þeir sem búa í Reykjavík hafi sama þingsetukaup sem nú gildir, 6 kr. á dag. Hins vegar get eg ekki séð betur en að það sé sanngjarnt, að þeir sem búa utan Reykjavíkur fái, auk þessara 6 króna, aukaþóknun, 2 kr. á dag, meðan þeir dvelja á þinginu. Flestir þeirra manna eru þannig settir, að þeir verða að fá kaupdýra menn í sinn stað meðan þeir eru að heiman. Svo er það um embættismenn og ekki síður um bændur. Maður getur nú sagt um embættismennina, að þeir séu flestir svo hátt launaðir, að þeim sé ekki ofætlun að borga sinum starfsmönnum. En um bændur er öðru máli að gegna. Þeir verða að kaupa dýra menn til að standa fyrir búum sinum, sjá um verkstjórn o. s. frv.

Fyrir því álít eg í alla staði sanngjarnt að kaup þeirra, er heima eiga utan Reykjavíkur, einkum bændanna, sé hækkað frá því sem nú er. Hins vegar engin ástæða til að bæta við kaup þeirra sem búsettir eru í Reykjavík.

Af þessum ástæðum vænti eg því að tillaga mín verði samþykt. En annars tel eg réttast að málinu sé frestað að þessu sinni.