23.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 1074 í B-deild Alþingistíðinda. (1518)

59. mál, þingfararkaup alþingismanna

Matthías Ólafsson:

Eg vil að eins segja nokkur orð til að gera grein fyrir br.till. minni. Hún finnur ekki náð fyrir augum hv. 1. þm. Rang., þótt ekki kannist eg við það að vera nokkuð með kosningabrellur, þótt eg komi með þessa br.till. Það er líklegt, að kosningar fari fram seint árið 1913, og er þá rétt, að þingmenn nú séu ekki að grufla í landssjóðinn fyrir sjálfa sig. Að öðru leyti er eg ekki andvígur frumv. Sérstaklega vil eg ekki gera Reykvízkum þingmönnum lægra undir höfði en utanbæjarmönnum. Og er það satt hjá hv. 1. þm. Rang., að ferðalög Reykv. þingmanna í kjördæmi sín eru oft mjög dýr, en ferðir utanbæjarmanna í kjördæmin eru sjaldan dýrar, þar sem þeir oft geta gegnt öðrum erindum sínum um leið.

Um tillögu hv. 1. þm. Skagf. vil eg segja, að mér þykir ólíklegt, að hún fái nokkurn byr.