23.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 1076 í B-deild Alþingistíðinda. (1522)
59. mál, þingfararkaup alþingismanna
Jón Ólafsson:
Hr. forseti! Mér blandast ekki hugur um það, að réttast er að fella þetta frv. Það kom bæði seint fram, enda er það illa undirbúið, og er því flaustur að samþykkja það.
Eg er samt ekki á móti tilgangi frv. Það er vitanlegt, að þegar ákvæðið um dagpeninga þingmanna var fyrst sett árið 1845, kostuðu lífsnauðsynjar ekki meira en þriðjung á borð við það, sem nú er. Þess vegna væri sanngjarnt að færa upp dagpeningana, þótt ekki sé hundrað í hættunni, ef frv. er látið bíða næsta þings.
Skrítnar þykja mér sumar br.till., t. d. frá hv. 1. þm. Skagf. (Ó. Br.). Eg veit ekki betur en að hann sé góður búmaður, sé umboðsmaður og hafi umboðslaun sín óskert meðan hann situr á þingi. Sumir hér gefa upp atvinnu sína til þess að geta setið á þingi; t. d. fer eg á mis við 10 kr. atvinnu daglega meðan eg sit á þingi. Eg skil ekki, hvernig þessi tillaga hefir skroppið úr höfði hv. þm., sem vill teljast hygginn, og gerir þó lítið til þess, nema ef vera má það, að segja ekki neitt. Og ekki metur hann sér minni ferðakostnað en aðrir menn.
Ég endurtek það, að rétt er að láta frv. bíða næsta þings, til betri undirbúnings. Það er tilgangur minn. Aftur er eg hræddur um, að sumum öðrum gangi það til biðarinnar, að þeir vilji helzt láta þá bið vera til dómsdags, til þess að geta sent uppskrúfaða ferðakostnaðarreikninga, sem hvergi eiga sér stað.