24.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 1081 í B-deild Alþingistíðinda. (1529)

59. mál, þingfararkaup alþingismanna

Jón Ólafsson:

Hr. forseti! Út af ræðu hæstv. rh. (H. H.) þá skal eg geta þess, að eg hefi bæði lesið og hugsað um frv. efri deildar, en það er ekki nóg að lesa það, maður þarf að þekkja til allra þeirra staða, sem um er að ræða. Eg hefi ferðast um allar sýslur þessa lands meira og minna, nema Dalasýslu. Og sérstaklega er eg kunnugur vegalengdum í Suður-Múlasýslu, sem eg hefi fyr og síðar margfarið um þvera og endilanga, enda er eg þar fæddur og upp alinn. Og eg tók einmitt sérstaklega dæmi úr Suður-Múlasýslu; þar er Geithellnahreppur fjarlægastur hreppur fráskipaviðkomustöðum og eru þar á milli 2—3 dagleiðir. Eg reikna að þingmaður hafi með sér 3 hesta á 2 kr. á dag, hestleiga er ekki dýrari en það. Til Seyðisfjarðar kostar farið 18 kr. hvora leið, ef ekki er keyptur „tour og retour“ farmiði. Sé keyptur „tour og retour“ farmiði, kostar farið báðar leiðir 28 kr. 80 au„ hvað á að gera við þessar krónur sem fram yfir eru. (Jóh. Jóhannesson: Eg þurfti til dæmis að borga 5 kr. fyrir að komast í land hér í Reykjavik). Mig varðar ekkert um hvað háttv. þm. hefir borgað mikið, hér kemst einn maður í land fyrir 25 aura, 50 aura hafi hann „koffort“ meðferðis, en það getur verið að menn borgi 5 kr. fyrir flutning í land, ef maður hefir meðferðis heilar fjölskyldur.

Ef maður nú einnig tekur til dæmis Austur-Skaftafellssýslu, þar eru Öræfin fjarlægust. Um þau er alveg sama að segja sem um Geithellnahrepp. Það eru hægar 3 dagleiðir úr öræfum austur á Djúpavog, og fullar eða rífar 2 dagleiðir lausríðandi suður aftur (frá Djúpavogi suður yfir Almannaskarð, og þaðan næsta dag í Öræfin). Reiknað eins og í S. Múl. Yrði landferðirnar þá 5 daga til og frá á þing, og annað eins af þingi, alls 50 kr. landferðirnar allar. Sjóferðirnar tvær milli Djúpavogs og Reykjavíkur minnir mig séu samtals 22 —23 kr. — ferðakostnaður alls 72—73 kr. fram og aftur í bæði skiftin.

Eg skal við þetta tækifæri geta þess, að eg reiknaði í fyrri ræðu minni Suður-Múlas. kostnaðinn úr Geithellnahreppi alla leið austur á Eskifjörð. En það var óþarfi; því að eins og strandferð um hagar nú, má alt af taka skip á Djúpavogi, og er einsætt að haga áætlun þannig einnig eftirleiðis — helzt færa fram ferðirnar um 1—2 daga, og er þá hvergi úr S.-Múlasýslu meira en 1 dagleið til skips, sé strandferðaskip tekið á næstu höfn í suðurleið.