20.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 1093 í B-deild Alþingistíðinda. (1539)

91. mál, bann gegn botnvörpuveiðum

Jón Magnússon:

Þetta frumvarp er komið fram af því, að þótt sjómenn stundum hafi staðið botnvörpunga að veiði í landhelgi, þá hafa þeir ekki hirt um að kæra þá, vegna þess að þeir mundu með því eyða miklum tíma og kostnaður yrði mikill við það fyrir þá, því að þeim gæti orðið dýr hver dagurinn, sem þeir þyrftu að vera við vitnaleiðslu o. s. frv. Þetta frumv. ætti nú að bæta úr því, og mundu þeir að mestu eða öllu leyti fá endurgreiddan þann kostnað, sem það hefði í för með sér, og ekki er ólíklegt, að það gæti gefið þeim nokkuð í aðra hönd, þar sem þeir, eftir þessu frv., eiga að fá 1/10 af sektunum. Raunar gæti það verið athugavert, að útlendingar mundu véfengja vitnisburð slíkra manna, þar sem kærendur eða vitni hefðu gróðavon með því að bera vitni og mundu ekki leggja mikið upp úr slíkri vitnaleiðslu. Eg vildi að eins benda á þetta, þó eg ekki sé beint á móti frv. Það álít eg rétt að forðast, að gera uppljóstur að gróðavon.