22.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 1096 í B-deild Alþingistíðinda. (1545)

80. mál, lendingarsjóðsgjöld

Matthías Ólafsson:

Herra forseti! Hér er eingöngu farið fram á það, að leyfa mönnum að hækka lendingarsjóðsgjald á sjálfum sér með samþyktum, og sýnist ekki vera neitt á móti því, að leyfa slíkt. Mér er kunnugt um það, að víða ber á viðleitni til þess að bæta lendingarstaði, og sumstaðar hafa menn jafnvel gert sér hafnir, svo að þetta eiga að verða eins konar hafnarsjóðir. Eins og menn vita er hér víða mikið hafnleysi, nema þar sem þær eru sjálfgerðar af náttúrunnar hendi, og það er fagur vottur um framtakssemi, að menn vilja eitthvað á sig leggja sjálfir til þess að bæta úr þessu, og vona eg því að því verði tekið vel og það fái að ganga í gegn.