20.08.1912
Neðri deild: 30. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 135 í B-deild Alþingistíðinda. (155)

37. mál, vörutollur

Jens Pálsson:

Mig langar til að segja örfá orð í tilefni af ummælum háttv. þm. V.-Sk.

Háttv. þm. talaði um það, að kolafrv. það, er hjer var afgreitt, hefði vakið hjer mikla mótspyrnu. Mótspyrnan var rjettmæt, og áköfust, meðan frumv. var með 2 kr. toll á smálest hverja, og gerði hverjum botnvörpungi því aukin ársútgjöld um 2000-4000 kr.

Þar sem háttv. þm. talaði um, að gert væri hjer ráð fyrir toll á matvöru, þá er þess að gæta, að sá tollur er svo hverfandi lítill, að hans gætir ekki.

Það sýndi sig á ræðu hins háttv. þm., að hann er nýr af nálinni hjer á þingi, þar sem hann var að tala um, að frumv. þetta væri nýr gestur hjer. Svo er nefnilega ekki. Frumv. þetta er gamall gestur, sem hefur legið fyrir á 2—3 síðustu þingum, svo að við, er hjer höfum átt sæti í deildinni, könnumst við það sem gamalt og kunnugt viðfangsefni, og flokkun sú, sem nú er í frumv., er svo einföld, að hver maður getur áttað sig á henni strax. Öðru máli er að gegna, er flokkarnir voru fleiri, eins og var á síðasta þingi.

Annars hlýtur háttv. þm. (S. E.) að vera þetta mál kunnugt, þar sem hann hefur mikið hugsað um tollmál; og ætla má um okkur alla, er hafa íhugað skattamálin, kolatoll, árgjald o. s. frv., er hjer hefur legið fyrir, að við höfum orðið að gera oss ljóst, á hvern hátt væri hagfeldast að bæta úr fjárþörf landssjóðsins, og höfum í því sambandi hugsað framkomin frumvörp um tekjur af verzluninni handa landssjóði, og athugað, hvert þeirra væri hagfeldast hvað tollgæzlu snertir.

Og það hefur verið aðaláhugamál vort allra nú, að bæta úr fjárþörf landssjóðsins, og við verðum allir að gera hið bezta til þess, eftir föngum, að svo verði gert á þingi þessu.