24.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 1101 í B-deild Alþingistíðinda. (1553)

5. mál, eftirlit með skipum og bátum

Forseti (M. A.):

Eg er meðmæltur öllum þessum breytingartillögum, að þær megi koma hér til umræðu og atkvæðagreiðslu. En ekki verður það gert, nema með afbrigðum frá þingsköpum, og vil eg leita leyfis til þeirra afbrigða.

Ráðherra og deild leyfði.