19.07.1912
Sameinað þing: 3. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 50 í B-deild Alþingistíðinda. (1576)
Prófun kjörbréfa
Björn Kristjánsson:
Það mun ekki hafa mikla þýðingu, að hafa mörg orð um þetta mál, og er líklega ljóst, hvernig muni eiga að fara með það hjer, en jeg vil þó tala nokkur orð og reyna eins og síðast að skýra það, sem ágreiningi veldur. Jeg sýndi þá við fyrri umræðu fram á það, eins ljóslega og tveir og tveir eru fjórir, að það er ekkert brot á kosningarlögunum, að margbrjóta kjörseðil. Jeg skýrði frá því, hvað sá, sem samdi lögin, hefði meint með 35. gr., sem sje það fyrst og fremst, að brjóta yrði seðilinn saman, til þess að nafnið sæist ekki, og svo í öðru lagi hitt, að óhentugt væri að brjóta hann oftar, því að þá gæti orðið örðugt að troða honum niður um þrönga rifu í atkvæðakassann. En hefði höfundur laganna búizt við því, að samanbrot á seðli gæti talist einkenni á honum, þá hefði hann að sjálfsögðu orðið að semja langa grein einmitt um það efni. Og ef það hefði þá verið meining þingsins, að það skyldi vera ógildingarsök á seðli, ef hann er ekki nákvæmlega einbrotinn, þá hefðu verið sett skýrari ákvæði um það í lögin. Þetta er jeg líka viss um, að hver maður, utan þingsins að minsta kosti, muni skilja. Ákvæðið er að eins leiðbeinandi, að eins til athugunar fyrir menn, til þess að kosningarathöfnin geti farið greiðlega fram.
Yfir höfuð voru lögin öll höfð ítarleg og alþýðleg, af því að ætlazt var til þess, að alþýða manna læsi þau og notaði fremur en flest önnur lög, og þess vegna eru í þeim þessar leiðbeinandi reglur, sem annars er ekki vani að hafa í lögum hjer á landi.
Mótstöðumenn mínir í þessu máli hafa lagt alt kapp á það, að þessum lögum sje fylgt bókstaflega, og háttv. þm. Ak. tók það mjög skarpt fram, að það kæmi ekki málinu við, hvað löggjafinn hefði meint, sem mun vera alveg ný kenning. Jeg skil nú ekki þetta, því að ef það á að verða regla lögfræðinganna, að skilja lögin eingöngu eftir bókstafnum, en hugsa ekkert um anda þeirra, þá veit jeg ekki, hvað þeir ætla að gera við sínar lögskýringar og það hefur þó annars ætíð verið venja þeirra, að rannsaka, hvað löggjöfunum hefur gengið til þess að setja lagaákvæðin og skýra þau svo samkvæmt því. — Nei, alt þetta hjal um það, að þessi brot á seðlunum sjeu lögbrot, er alveg rangt, og líklega sagt sem slagorð til þess að „smitta“ fólkið. Til þess að sanna þetta nægir það eitt að benda á það, að sami lögfræðingurinn hefur setið í yfirkjörstjórn annars staðar og tekið þar gilda sams konar seðla og þá, sem hjer voru dæmdir ógildir. Sama hefur bæjarfógetinn í Reykjavík gert, sem nú vill ógilda seðlana. Hvernig eiga menn að una við það, að lögskýringarnar sjeu alt aðrar í yfirkjörstjórninni, en í þingsalnum? — Í sambandi við það, sem jeg sagði um 35. greinina, að hún væri leiðbeinandi, vil jeg líka benda á annað atriði, sem þeir hefðu gott af að hugsa út í, sem vilja skilja þá gr. svo strangbókstaflega. Þar stendur að kjósandinn eigi að gera kross við nafn þess þingmannsefnisins, sem hann vill kjósa, og í lögunum er prentaður ská-kross, svona: X. Hvernig fer nú ef krossinn er gerður dálítið öðruvísi, t. d. svona: +? Ætla þeir að ógilda seðlana fyrir það? Ónei, það vita allir, að allur fjöldinn af kjósendum gerir krossinn einmitt svo, og dettur engum í hug að finna að því, og þó er þetta öðru vísi í lögunum, svo að þeir, sem vilja halda sjer við bókstafinn, ættu að geta sagt, að það væri gert af ásettu ráði, ef út af þessu er brugðið. Svona má sýna, hvernig alt fer í vitleysu, ef á að eltast við bókstaf laganna út í æsar. Þá veitti ekki af löngum lagabálki í viðbót, til skýrngar, og þá er það skyldast þeim háttv. herrum, sem nú eru mótstöðumenn mínir í þessu máli, að koma með þann lagabálk, því að fólkið verður þó að vita, hvernig það á að haga sjer í þessu, og jeg vil jafnvel segja, að kjósendur þyrftu þá einnig að ganga í skóla til þess að læra rjetta aðferð við kosningarnar; væri nauðsynlegt, að setja upp slíkan skóla í hverri sveit.
Það er nú einu sinni svo, að mönnun hættir mjög alment til þess, að brjóta kjörseðla oftar en einu sinni saman. Það sem veldur því, er það, að flestir eru vanir við ,það að stinga hinum og þessum miðum í vasa sinn, buddu eða veski, og þurfa þá oft að margbrjóta þá, til þess að þeir komist þar fyrir. Þess vegna verður þeim það ósjálfrátt, að fara eins með kjörseðlana. Að minsta kosti sje jeg ekki aðra skýringu líklegri, þrátt fyrir öll ummæli háttv. þm. S.-Múl. — Þeir segja, hann og aðrir slíkir, að það eigi að brjóta seðlana einu sinni saman, og þá sje lögunum fullnægt. En jeg vil þá spyrja þá, og einkum lögfræðinginn, háttv. þm. Ak., hvernig honum lízt á þennan seðil, sem jeg held á og sem er einbrotinn saman í horn. Hann er einbrotinn, en hann er reyndar brotinn í horn, svo að úr honum tvöföldum verður þríhyrna. Hjer er annar einbrotinn, sem ekki er brotinn um miðjuna, heldur er bara brotið upp á hann öðru megin, mátulega mikið til þess að hylja nafnið. Samkvæmt lögskýringum þessara herra væru báðir þessar seðlar löglega brotnir, enginn vegur að gera þá ógilda, og hitt sjá allir jafnvel, að samkvæmt skoðun þessara sömu manna, eru báðir seðlarnir fult svo einhendir sem þeir seðlar, er hjer er verið að deila um.
Allir sjá, með öðrum orðum, hvaða hugsunarvillu þeir fara með, og að þessar mótbárur eru einungis hártoganir, sem ekki er bót mælandi.
Jeg skal nefna enn eitt dæmi. Það þarf ekki að brjóta miðann saman, það má leggja hann saman, svo að nafnið sjáist ekki, og koma honum þannig niður í kassann, að hann opnist þegar þar er komið. Þetta hefur einmitt oft komið fyrir. Á nú að dæma þann miða ógildan? Ekki hefur það að minsta kosti verið gert hingað til. Yfirleitt eru þessar lögskýringar þeirra ekki mikils verðar, og jeg vildi óska, að þær hefðu aldrei komið hjer fram. Sízt máttu þær koma frá háttv. þm. Ak., eða háttv. þm. Vestm., þar sem þeir hafa áður tekið gilda samskonar seðla og þá, sem þeir vilja nú ónýta, þegar þeir sátu í kjörstjórn, enda hefur það víst alstaðar verið gert, nema ef til vill í Strandasýslu.
Það er sorglegt að sjá skýra lögmenn skifta þannig um lögskýringar, eins og þeir væru að hafa fataskifti. Það hefur borið töluvert á því, að þeir hafi gert það á síðari árum, og væri óskandi, að það legðist niður sem fyrst.
En þó jeg minnist á þetta, þá var það nú samt ekki aðal atriðið. Hitt er miklu meira um vert að meiri hluti kjósanda hefur óskað eftir, að kosning Matt. Ól. væri ekki tekin gild. Spurningin verður þá um, hvort þingið vill taka tillit til vilja meiri hluta kjósanda í kjördæminu. Þeir fara ekki fram á annað en, að kosið verði á ný, og ný kosning fái að skera úr.
Ef Matt. Ól. álítur sig eiga rjett til þingsetu, þá er engin hætta fyrir hann að ganga að þessu; hann ætti miklu fremur að vera þess fýsandi, að ný kosning færi fram. — Eins og allir vita, eru nú stjórnarskifti í vændum innan skamms, og tel jeg það hyggilegt af væntanlegri stjórn, sem auðvitað getur haft mikil áhrif á þetta mál, að láta þingið ekki skera úr, hver skuli vera kosinn, heldur kjósendur sjálfa. Eins og allir vita, er mikil óánægja í kjördæminu út af þessu, en hinsvegar er sjera Kristinn Daníelsson hvergi nálægur til að „agitera“ — og mundi enda aldrei gera það, þó hann væri á staðnum, það er svo fjarri skapi hans. Mjer sýnist því af öllum ástæðum rjett að vísa þessu máli heim í kjördæmið aftur og láta kjósendur skera úr. Fyrir hina nýu þingræðisstjórn væri það mjög óefnileg byrjun að úrskurða kosninguna gilda þvert ofan í yfírlýstan vilja meiri hluta kjósandanna. Að Matt. Ól. er ólöglega kosinn, tel jeg víst, að hvert mannsbarn á landinu utan þingsins skilji; málið er svo skýrt, að engum, sem óhlutdrægt vill dæma, getur dulizt, að seðlarnir eiga að vera gildir. Og þar sem nú svo stendur á, er það alvarlegt íhugunarefni fyrir meiri hlutann, að kveikja ekki með þessu nýjan ófrið úr litlu efni. Því það verður ekki til að efla frið á þinginu, ef meiri hlutinn alveg að ástæðulausu — því hann er fullsterkur fyrir — samþykkir kosningu þessa ólöglega kosna manns. Jeg vona, að allir þingmenn sjái það, að bezt er að vekja ekki óánægju að ástæðulausu og því samþykkja, að ný kosning skuli fram fara.