19.07.1912
Sameinað þing: 3. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 59 í B-deild Alþingistíðinda. (1578)

Prófun kjörbréfa

Guðlaugur Guðmundsson:

Það hefur litla þýðingu að lengja umræðurnar um þetta mál. Það liggur mjög skýrt fyrir: á alþingi að fella úr gildi úrskurð yfirkjörstjórnarinnar, sem er fyllilega bygður á ákvæðum laganna? Annað er það ekki. Háttv. 2. þm. G.-K. vil jeg svara því, að engar upplýsingar liggja fyrir um það, að hin ólöglegu brot sjeu því að kenna, að kjósendur hafi verið fatlaðir; þvert á móti. Seðlarnir voru mjög laglega brotnir saman í fyrsta sinn. Að því er snertir margföldu brotin í seðlunum, sem háttv. þm. Dal. mintist á, skal jeg geta þess, að jeg athugaði seðlana að eins lauslega, meðan jeg hafði þá undir hendi og veitti því ekki sjerstaka eftirtekt, hvort þeir væru þann veg brotnir, að ástæða væri til að ætla, að brotin væru einkenni. Þess gerðist heldur ekki þörf, því þeir voru ógildir, þó svo væri ekki. En hafi brotin verið auðkenni, þá er líka auðvitað engum blöðum um það að fletta, að þeir eru tvímælalaust ógildir í sjálfu sjer samkvæmt 38. gr. laganna. Brot er engu síður einkenni en strik. — Það er tekið fram í nefndaráliti meiri hlutans, að slík óvandvirkni í atkv.-greiðslu, sem komið hafi fram í Vestur-Ísafjarðarsýslu, er mjög ámælisverð, þar sem 50 seðlar eru gallaðir af 276. Sje þetta borið saman við önnur kjördæmi, þá sjezt það, að hvergi hafi óvandvirknin verið jafnmikil. Í Mýrasýslu er tala ógildra seðla lægst, 2%, að eins 4 af 227. Næst henni er Árnessýsla með 18 ógilda af 678 seðlum. Næst hæst er tala ógildra seðla í Gullbringu- og Kjósarsýslu, sem sje 47 af 725 seðlum. Það er 7%.

Að samdóma áliti allra eru í Vestur- Ísafjarðarsýslu ógildir alls 18% af seðlunum. Þetta er langtum meira en í nokkru öðru kjördæmi landsins.

Að úrskurður yfirkjörstjórnar sje í alla staði skýr og lögum samkvæmur, getur víst enginn efað.

Látum svo vera, að þetta sje sem kallað er „strictum jus“ — strangur rjettur—; en hjer er um svo mikla vanrækslu og mikið skeytingarleysi að ræða, að fullkomin ástæða er til að taka hart á þessu. Það er skylda þingsins að halda uppi reglu og hlýðni við kosningarlögin, en á alls ekki að verðlauna vanrækslu og skeytingarleysi.

Háttv. þm. N.-Ísf. talaði af miklum móði um, að vilji meiri hluta kjósanda væri fyrir borð borinn í þessu máli. Þetta er alveg rangt.

Hinn sanni og löglegi vilji kjósandanna hefur ekki komið fram í öðru en því, og getur heldur ekki komið fram í öðru en því, að kosning Matthíasar Ólafssonar sje gild metin.

Þá er það og gersamlega rangt, að þingmannsefni, er í kjörstjórn situr, hafi ekki leyfi til að mótmæla og úrskurða; því hann er einmitt hvorttveggja; er um leið bæði þingmannsefni og kjörstjóri, og það er í alla staði löglegt.

Háttv. 1. þm. G.-K. sagði áðan í ræðu sinni, að jeg talaði alt öðru vísi og ályktaði hjer í þingsalnum, en í mínu kjörstjórasæti. Hvaðan kemur háttv. þm. sú vizka? En það er töluverður munur á því, til hvers kjörstjórn er skyldug, eða hvað hún hefur leyfi til að úrskurða um.

Það var talað um það áðan hjer í deildinni, að orð mín um freka atkvæðasmala væru lítilsvirðandi í garð kjósandanna. — Þessu mótmæli jeg algerlega.

Jeg vil að lokum leyfa mjer að spyrja háttv. þm. Dal., á hvaða undirstöðu hann haldi að leynd kosningarlaganna sje bygð —. Hún er sem sje á engu öðru bygð en því, að til væru í kjósandaflokki víðsvegar um land svo háðir menn, að þeir ættu á hættu að geta kanske ekki að öðrum kosti neytt atkvæðarjettar síns.

Að svo mæltu endurtek jeg það, að þingið á vafningalaust að taka þessa kosningu gilda.