22.08.1912
Efri deild: 32. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 146 í B-deild Alþingistíðinda. (159)

37. mál, vörutollur

Sigurður Eggerz:

Jeg get lýst því yfir þegar, að mjer virðist fjármálahnúturinn mjög óheppilega leystur með því frumv., sem hjer liggur fyrir, og því sorglegra virðist mjer, ef þetta frumv. yrði samþykt, þar sem einfaldari og greiðari lausn á fjármálunum liggur fyrir hendi.

Eins og kunnugt er, hefur háttv. Ed. samþykt 1,50 kr. kolatoll og háttv. Nd. 1 kr. kolatoll. Það er því ljóst, að báðar háttv. deildir eru sammála um, að tollstofn þessi sje heppilegur. Ef hinar háttv. deildir hefðu nú getað komið sjer saman um tollhæðina, og það virðist í raun og veru vera einfalt mál; því þá ekki una við þá lausnina; hún var einföldust og óbrotnust.

Sumir kynnu nú að hugsa, að það væri metnaðargirni af minni hálfu og okkar flutningsmanna, að koma þessum kolatolli áfram. En þar til vil jeg svara því, að við höfum ekki bent fyrstir á kolin sem tollstofn. Sú uppgötvun er langt um eldri. Því fremur er ástæða til þess fyrir alþingi, að varpa áhyggju sinni á þennan tollstofn eingöngu. sem það má telja víst, að jafnvel þó frumv. þetta yrði samþykt, þá kæmi sá eiginlegi vilji þingsins ekki fram í því. Þessu til sönnunar skal tekið fram, að háttv. Nd., sem að jafnaði á að ráða mestu um fjármál landsins, hafði verðtollinn og þetta frumv. jafnhliða til umræðu, og afgreiddi verðtollinn fyrst, en fyrir tilviljun eina var þetta frumv., sem hjer liggur fyrir, þá ekki samtímis kveðið niður. Auk þess má geta þess, að þó verðtollinum væri komið fyrir kattarnef íþessari háttv. deild, þá var það mikið af því, að ekki þótti tími til að athuga málið; hins vegar er það kunnugt, að í árgjaldsfrumvarpinu, sem barnfætt er hjer í deildinni, var verðtollsstefnan ráðandi.

Sannleikurinn er sá: það var enginn tími til þess að athuga verðtollsfrv., það er ennþá minni tími til að athuga þetta. En hjer er um algerlega nýja stefnu að ræða í tolllöggjöfinni.

Háttv. framsögum. sagði við 1. umr. þessa máls, að á því mætti sjá, að jeg væri nýr þingmaður, þar sem jeg teldi stefnuna í þessu frumv. nýja, þar sem lík frumv. hefðu verið fyrir þingunum 1909 og 1911.

Mjer er vel kunnugt um það, að þessu lík frv. voru fyrir á þingunum 1909 og 1911. En þótt stefnan sje 4 ára gömul, þá hygg jeg þó, að rjett sje að kalla hana nýja. Og það jafnvel þó þau breiðu spjótin sjeu farin að tíðkast, að menn gleyma fánanum, sem þeir hafa svarið undir, á þessu tímabili. Annars er það vitanlegt, að þessi stefna fjekk einhverja þá ókristilegustu jarðarför, sem sögur hafa farið af hjer í þinginu, og var ekki rædd svo rækilega af þjóðinni, af því að gengið var að því vísu, að hún væri úr sögunni.

Nei, af þessu gat háttv. framsm. ekki sjeð, að jeg væri nýr þingmaður, en af öðru gat hann sjeð það. Það fer svo oft fyrir oss, nýju þingmönnunum, að þó við komum með pokann fullan af sanngirni og viljum ekkert leggja til málanna annað en það, sem vjer teljum rjett vera, þá hættir þeim eldri við, sem eru orðnir þreyttir og mæddir af sanngirninni, en því vanari glímubrögðunum bæði bak við tjöldin og eins á vígvellinum, að taka alt sem glímubrögð. Og svo beita þeir þrautreyndu glímubrögðunum sínum gegn sjálfri sanngirninni, og á þessum brögðum falla margar góðar tillögur. Væntanlega fellur kolatollsfrumvarpið á þessum brögðum, og því vildi jeg þegar í byrjun beita glímnari manni en mjer fyrir það.

Um frumv. sem hjer liggur fyrir, (vörutollsfrv.), hefur það verið sagt, að það sje nú komið fram í nýrri og annari mynd en 1911.

Þetta er vitanlega satt, því frv. hefur tekið miklum breytingum, og má vera, að þær sjeu til bóta. Hitt er þó víst, að allar aðalmótbárurnar á móti frumvarpinu 1911 eiga einnig við þetta frumvarp. Háttv. 4. kgk. tók það rjettilega og rækilega fram, að innheimtan á tollunum mundi reynast mjög örðug. Þessu er jeg fyllilega sammála, og jeg sje yfir höfuð ekki, hvernig hægt er, að innheimta tollinn samkvæmt þessu frumv., án aukins tolleftirlits, svo í nokkru lagi fari.

Að vísu er frumv. orðið í vissum skilningi einfaldara og óbrotnara við það, að vörutegundir eru nú færri í hverjum flokki en 1911; en flokkarnir eru nálega jafnmargir og áður; þeir eru nú 6, en 1911 voru þeir 7. Og þar sem tollurinn af 50 kíló í hæstu flokkunum er kr. 3,00 og kr. 1,00, en í lægstu flokkunum kr. 0,10, þá má telja það eins víst og að vatnið rennur frá hærri staðnum á lægri staðinn, ef engar stíflur eru gerðar til að varna því, að tilhneigingin muni verða rík hjá kaupmönnum, sem ekki eru rótgrónir í heiðarlegleikanum, að færa tollvörurnar úr hærri flokkunum niður í lægri flokkana. Og á móti þessu verður að eins spyrnt með í kröftugu tolleftirliti, en hvað mundi það kosta? Með þessu frumv. eru dyrnar að tollsvikunum opnaðar meira en í hálfa gátt. En ekkert er eins siðspillandi og það, og hægra að steypa mönnum út á þá leið, en stöðva þá á henni aftur.

Enn þá verulegri er þó önnur mótbáran.

Aðal erfiðleikarnir við tolllöggjöfina eru fólgnir í því, hvernig tollurinn skuli koma niður.

Hjer er í ráði auk tolla þeirra, sem nú hvíla á þjóðinni, sem mörgum hafa þótt nægilega þungir, að leggja enn á hana góða 1/2 miljón á hverju fjárhagstímabili. Það er nú auðsætt, ef þjóðin á ekki að bogna undir þessum stöðugu skattaálögum, þá verður að minsta kosti að gæta þess, að skattarnir komi rjettlátlega niður. En hvernig er nú sjeð fyrir þessu í frumv. því, sem hjer liggur fyrir. Þessu vandamáli er varpað að mestu leyti á lögmál þyngdarinnar. Og þetta eitt er nægt til að sýna, hvað rjettlætinu er skipað hátt sæti í þessu tollfrumvarpi. Og þó með flokkuninni sje viðleitni sýnd til að jafna ranglæti þessa undarlega tolllögmáls, þá er þessi flokkun engan veginn næg til að draga úr ójöfnuðinum.

Þó það sje allmikið falið í þokunni, hvernig tollar þessir komi niður á einstaka vörutegundir, þá má telja víst, að þeir koma all hart niður á nauðsynjavörunum, og við allar nauðsynjavörur koma þær nokkuð, einnig matvöruna, og hún hefði þó gjarnan mátt vera undanskilin. Og því miður er jeg hræddur um það, að þungir tollar á allri nauðsynjavöru þjóðarinnar komi nálægt hjarta hennar. Aftur á móti sleppur glingur, gullstássið og allur hjegóminn ótrúlega vel; þunginn verður því ekki að meini. Og á því dóti mættu tollarnir gjarnan koma hart niður. Jeg skal að eins tilfæra sem dæmi, að samkvæmt 2. gr. 6. lið, er 1 kr. tollur af 50 kíló á ýmsum vjelum til landbúnaðar og sjávarútvegs, en sami tollur er af 50 kíló af gullúrum og ýmsu glingri. Það mætti telja ótal fleiri dæmi upp á rjettlætið í þessu frumv., en dagurinn mundi ekki endast til þess.

Jeg minnist þess, er kolatollsfrumvarpið kom hjer fyrst fram í háttv. deild, þá fór stillingin af sumum stillingarmönnunum. Þeim ofbauð þessi ógurlegi tollur. Þeir hjeldu hann mundi fæla útlendingana í burtu, breyta gufuskipunum í díselmótora, hálfdrepa vora eigin botnvörpuútgerð og kúga fátæklingana. Hvað segja þeir nú? Hjer er líka kolatollur á ferðinni, en hann fer ekki einn, því hjer er líka salttollur, hjer er tollur á öllum áhöldum til sjávarútvegsins, og hjer er tollur á matvöru.

Nú gleyma þessir háttv. þingm. væntanlega ekki fátæklingunum, nú hræðast þeir víst díselmótorskipin, nú skjálfa þeir víst fyrir útlendingunum, því varla er kolatollurinn nú orðinn betri fyrir þann ratnma, sem hann nú er kominn í.

Það er sannarlega margt undarlegt í þessu frumvarpi.

Í 2. gr. frumv. er gert 15 aura gjald af hverjum póstbögli; ætli það verði ekki farið að flytja nokkuð margt í póstböglum? Ætli silki og fleiri dýrindisvarningur, sem hátt gjald er af, komi ekki þá leiðina. Og ætli að póstböglarnir verði ekki nokkuð margir, og ætli að það sje ekki hætt við því, að vindlarnir, sem nú er hár tollur á, læðist inn með öllum böglafjöldanum o. fl.

Það er svo fjölda margt, er þarf að alhuga og lagfæra í frumv. þessu, að það er ómögulegt að heimta það, að háttv. deild geti afgreitt málið á jafnstuttum tíma, og nú er eftir af þingtímanum, og háttv. nefnd, er hafði málið til meðferðar, hefur alls ekki unnizt tími til að upplýsa málið á nokkurn hátt, og var þó nefndin skipuð dugandi mönnum. Nei, nefndin hefur sannarlega ekki greitt gang þess hjer um deildina. Nefndarálitið er örfáar línur og meiri hluti nefndarinnar hefur undirritað það með fyrirvara, og mjer heyrðist á háttv. framsögumanni, að rjettast hefði verið, að öll nefndin hefði undirritað það með fyrirvara, og við þetta vildi jeg að eins bæta því, að jeg vona, að öll háttv. deild hafi nægilega sterkan fyrirvara gegn frumv. þessu.

Háttv. Ed. getur því ekki á nokkurn hátt afgreitt mál þetta, nema með því, að trúa háttv. Nd. fyrir því, að þessi varaskeifa hennar sje góð, en þó jeg efist ekki um það, og þó jeg viti, að hjer sjeu margir óbilugir trúmenn, þá ímynda jeg mjer samt, að þetta frumv. verði of sterk eldraun fyrir trú þeirra. Í þessu sambandi skal jeg benda á, að flutningsmaður máls þessa (B. K.) hefur gert útreikning á þskj. 201 um það, hvernig tollur þessi komi niður á hinar ýmsu vörutegundir, en jeg veit ekki til, að neinn hafi rannsakað, hvort þessi reikningur hans er rjettur eða ekki, og tel jeg það þó sæmilega nauðsynlegt, ef frumv. þetta á að verða að lögum, því með því fengi maður þó nokkra hugmynd um, hvernig tollurinn kæmi niður.

Ef háttv. deild samþykkir frumv. þetta eftir ekki lengri yfirvegun, en nú hefur verið kostur á, má vel vera, að því verði vel tekið hjer í þingsölunum, en jeg er sannfærður um, að þjóðin segir þá með háðsglotti: „Mikil er trú þín kona“.