22.08.1912
Efri deild: 32. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 151 í B-deild Alþingistíðinda. (160)
37. mál, vörutollur
Ágúst Flygenring:
Jeg er samþykkur háttv. þingm. um, að frv. þetta sje óaðgengilegt, en það yrði ekkert aðgengilegra, þó að nefnd meðhöndlaði frumv. og athugaði það grandgæfilega; því frv. er gamalt, og það hafa margir hugsað um það. Og ef frv. ætti að vera rjettlátara, þá þyrfti sundurliðunin að vera meiri, en þeim mun meiri sem hún er, þeim mun örðugra er það til tolleftirlits.
Milliþinganefndin í skattamálum sýndi það ljóslega, að verðtollur er ómögulegur til framkvæmda nema með tolleftirliti, og þetta álit nefndarinnar stendur óhrakið enn. Það var gert mikið veður út af því, að nefndin hefði áætlað of lítið eftirlit með vefnaðarvörutolli þeim, er hún flutti; en hafi eftirlitskostnaður verið álitinn of lítill, þá nær það ekki nokkurri átt, að hyggja, að verðtollurinn þurfi ekki frekari eftirlits.
Það ætti annars hver maður að geta sagt sjer það sjálfur, að verðtollurinn eins og hann kom frá háttv. Nd., var gersamlega óhæfur án tolleftirlits.
Í frv. þessu er tollurinn lagður á eftir þunga, og jeg skil ekki, að það sje hægt, sem háttv. þingm. V.-Sk. hjelt fram, að flyta vöruna á milli flokka, úr hærri gjaldflokk í lægri gjaldflokk, en jeg er hins vegar samþykkur háttvirtum þingmanni um það, að gjaldið sje alls ekki rjettlátt. Verðtollur sá, er hjer lá fyrir, var alls ekki rjettlátur, bæði frumv. eru slæm, þó jeg telji þetta heldur skárra.
Frá mínu sjónarmiði er verst, að leggja toll á allar aðfluttar vörur, það stríðir á móti eldri stefnu þingsins í tollmálum, þeirri, að leggja tolla á einstakar vörutegundir, einkum á óþarfar vörur eða eyðsluvörur, sem má ýmist spara til muna eða alveg vera án og hægt er að hafa eftirlit með, eða þá að leggja á tolla, eins og milliþinganefndin stakk upp á, með frumv. um toll á vefnaðarvöru, sem, um leið og tekjur fengjust af því, miðaði til þess að uppörfa iðnað í landinu sjálfu.
Það er síður en svo, að jeg vilji mæla frumv. þessu nokkra bót, en jeg álít gagnslaust, að tala um það, og að hægt sje að bæta það með því, að setja það í nefnd, tel jeg engin líkindi til.
Það er öllum illa við þetta frumv., en það eru þeir, er hafa gasprað mest á móti milliþinganefndinni, og reynt af öllum mætti, að drepa öll frumvörp hennar, sem nú hjálpa frumv. þessu áfram. Þessir menn hafa í vandræðum sínum tekið upp gömul frumv., er hafa verið dauðadæmd altaf, er þau hafa komið fram á síðustu þingum, og nú er svo komið, að þetta frumv. verður að vera þrautalendingin, því það er eina frumv., sem er eftir. (Sigurður Stefánsson: Kolafrumvarpið?). Málinu hagar alt öðruvísi nú, en á síðasta þingi; þá var ekki nauðsynlegt, hvað sem það kostaði, að afla landssjóði strax tekna, en nú er það brýn nauðsyn, áfengistollurinn horfinn, fjárhirzlan tóm og 250 þús. kr., er landssjóður á að borga í víxlum. Þingið getur ekki skilið svo við fjárhaginn; það væri skömm mikil.
Jeg vil stimpla frumv. þetta sem neyðarúrræði, sem er að eins tekið af því, að um ekkert annað tekjuaukafrumvarp er nú að ræða. Þegar við feldum verðtollinn hjer í háttv. deild, þá sögðum við ekkert annað um hann, en að hann væri ekki framkvæmanlegur án mikils eftirlits, og það er öldungis rjett; jeg held, að við hefðum ekki getað látið hann fá heiðarlegri jarðarför, en hann fjekk, og sízt verðskuldaði hann aðra betri.
Jeg vil ekki minnast á kolatollinn, en skal geta þess, að ef við förum að skatta einhverja vöru, þá eigum við að taka þá vöru, sem ekki er notuð af einstökum stjettum, heldur landsmönnum í heild sinni. Og hljóta víst allir að sjá, að gjaldið getur ekki verið rjettlátt, þar sem það er eitt út af fyrir sig til stórhnekkis einum atvinnuvegi.
Það var meining milliþinganefndarinnar með frumv. sínu um einkaleyfi á kolum, að ná handa landssjóði nokkru af verzlunarhagnaðinum af kolunum, en það var ekki ætlun hennar, að þau yrðu dýrari, heldur miklu fremur hitt, að þau yrðu ódýrari, og jeg býst við því, að þess verði ekki mjög langt að bíða, að augu manna opnist fyrir því, að þetta er einmitt rjetta leiðin í skattamálum, að láta heldur verzlunarhagnaðinn renna í landssjóð, heldur en gera vöruna dýrari. Bóla sú, er blásin hefur verið upp gegn nefndinni, hjaðnar niður með tímanum,
Þar sem háttv. þm. (V.-Sk.) var að tala um það, að frv. þetta, er hjer liggur fyrir, væri ósanngjarnt og kæmi við hjarta þjóðarinnar, þá býst jeg ekki við því, að við leggjum á skatta, svo að öllum getist að. Það er tillfinningamál hvers einstaks, hvernig hann vill láta taka skattana, og vilji manna er mjög dreyfður, einn vill þetta, annar hitt, og nær því að segja megi, að það sem Pjetur vill, það vilji ekki Páll, og þó að jeg sje „bræðingi“ hlyntur og allri góðri samvinnu, þá treysti jeg mjer alls ekki til og hef ekki trú á, að bræða megi alla þessa vilja saman í einn vilja. Enda verða skattar aldrei lagðir á með fullkominni sanngirni; það má alt af deila um hvað rjettlátt sje í þeim efnum, með sanngirni er ekki hægt að leggja á skatta.
Hvað tollsvikin snertir, er h. þm. (V.-Sk.) talaði um, þá er jeg honum sammála um, að þau geti orðið ef til vill nokkur, en jeg hygg, að þau verði þó ekki á þann hátt, sem háttv. þingm. sagði: með því að flytja vöru úr hærri gjaldflokk í lægri gjaldflokk, einmitt af því flokkarnir eru svo fáir, að svo má segja, að vörur þær, sem lagður er tollur á: þessi lægri tollur eftir frumv., þær koma hingað í originalumbúðum. Hverjum dytti t. d. í hug, að flytja steinolíu hingað til lands öðru vísi en í steinolíutunnum; ef hún væri flutt hingað til lands í öðrum umbúðum, þá kæmist það vitanlega strax upp. Og t. d. að í heyi og með gluggagleri er ekki hægt að flytja aðrar vörur.
Það, sem mjer er verst við frumv. fyrir, er að það raskar eldri fyrirkomulagi okkar.
Auk þess er líka ýmislegt ranglátt, t. d. 6. liður 1. gr., en það er ekki hægt að lagfæra það, nema þá með því, að gera flokkunina enn þá meiri og nákvæmari, en þá rekur maður sig aftur á gamla skerið: að með því verður frumvarpið gersamlega óframkvæmanlegt án sjerstaks og mikils tolleftirlits.
Jeg verð því að líta svo á, sem afstaða vor sje svipuð til frumv, þessa, eins og hjá manni, sem er að drukna, og eðlilega reynir að taka hvern þann kost, er býðst, sjer til hjálpar. Við þingmenn getum ekki skilið svo við þing þetta, að við ekki sjáum fyrir því, að landssjóður hafi nægilegt fje til að greiða með lögboðin gjöld sín.