22.08.1912
Efri deild: 32. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 158 í B-deild Alþingistíðinda. (163)

37. mál, vörutollur

Stefán Stefánsson:

Jeg hafði ætlað mjer að taka ekki til máls, enda hef jeg hvorki eytt tíma þingsins nje lengt þingtíðindin með mörgum nje löngum ræðum að þessu sinni. En það er svo að sjá, sem allir þeir háttv. samnefndarmenn mínir, er rituðu undir nefndarálitið um þetta með fyrirvara, hafi talið sjer skylt að gera grein fyrir þessum fyrirvara, hver sje ástæðan til hans, og hvað í honum felist, svo að mjer þykir rjettast, að gera það sama. Það hefur líka komið fram í ræðum háttv. samnefndarmanna minna, að þeir greiði ef til vill atkvæði móti öllum brtill. nefndarinnar, og það enda þótt þeir játi, að hin mesta nauðsyn sje á, að laga það, er þær fara fram á, að lagað sje, og það getur vel verið, að það fari eins fyrir mjer, því að þessar brtill. nefndarinnar eru svo lítið af því, sem jeg vildi koma fram með breyt.till., að mjer finst satt að segja tæpast taka því að samþ. þær.

Fyrirvara minn ber að skilja svo, að jeg er óánægður með alt frumv. Það eru ekki smágallar á því; þessu sem jeg vildi breyta; heldur vildi jeg, ef kostur væri á, breyta því öllu, því að frumv. er alt einn stórgalli á tolllöggjöf vorri. Það eru ekki einstöku viðir í því, sem eru fúnir, heldur eru allir innviðir þess fúnir, grautfúnir. Það er bót í máli, að frumv. á ekki að gilda lengur en til ársloka 1915, og jeg býst líka við, að það gildi ekki lengi. Og þó að þetta ákvæði um, að þau skuli ekki gilda nema 2—3 ár, stæði ekki í frumv., hygg jeg, að það mundi falla samt. Þetta eru þau rök, er ollu því, að jeg skrifaði undir nefndarálitið með fyrirvara.

Um brtill. nefndarinnar er það að segja, að jeg hygg, að því verði ekki neitað, að þær sjeu til bóta. Það er t. d. ekki hægt, að neita því, að brtill. um, að brot úr tolleining skuli talið sem heil tolleining, er til bóta. Nd. tók þetta í hugsunarleysi upp úr eldri tolllöggjöf, og gætti þess ekki, að hjer stóð öðruvísi á. Því verður ekki heldur neitað, að bót er að brtill. um, að gjaldið af öllum öðrum vörum en þeim, er frumv. nefnir með nafni, skuli fært úr 1 kr. ofan í 50 aura. Það er að vísu töluvert ranglæti í því, að tollurinn sje 50 aurar, en það er þó hálfu minna ranglæti en nú er eftir frumv., þar sem gjald þetta er lækkað um helming. Jeg álít að athugasemdir háttv. 2. þm. Árn. um þetta, að það ætti að taka sumar þessar vörur og setja þær í 2. flokk, vœru hárrjettar. Í þessum flokki eru þung verkfæri og vjelar, svo að hjer er lagður tilfinnanlegur tollur á þá, er vilja flytja nýjar vjelar til landsins, og miklar framfarir kunna að vera að. En þegar jeg nú hugsa um þessar brtill. nefndarinnar, þá kemur mjer í hug það, sem greindur og gamall þingdeildarmaður sagði við mig í dag, er við áttum tal saman um frumv. Hann hjelt, að það sæi ekki á svörtu. Jeg held, að það sjái ekki á svörtu, þótt frumv. verði samþ. án þeirra bóta, er brtill. nefndarinnar vilja gera á því.

Jeg vona, að háttv. þingdeildarmönnum sje nú orðið ljóst, hvað fyrirvari minn merkir, og hvers vegna jeg hef skrifað undir nefndarálitið með honum. Jeg hef og gefið það í skyn, bæði með honum og því, sem jeg hef nú sagt, að jeg sje þó — þrátt fyrir alt — frumv. fylgjandi, út úr neyð.

Háttv. þm. Árn. talaði um, að það væri beitt furðu mikilli kepni í þessu máli. En mjer þykir það furða, að tala um kepni frá hálfu okkar fylgjenda málsins í þessari deild. Það er öðru nær, en við höfum kepzt um, að koma þessu frumv. fram. Ef jeg verð neyddur til þess að greiða atkvæði með þessu frumv., þá geri jeg það með samvizkunnar mótmælum, og með þeirri öruggu von og traustu sannfæringu, að þessi lög verði ekki langæ, að þau eigi sjer varla lengri aldur en til næsta þings. Jeg vona, að þá verði að minsta kosti gerðar miklar breytingar á þeim. En mjer þykir óhæfa, að skilja svo við þingið, að ekki sje eitthvað gert til að bæta fjárhag landsins, og því neyðist jeg til, að styðja frumv. Jeg skil ekki, hvernig í ósköpunum háttv. þm. Árn. fer í þessu sambandi að tala um kepni. (Jón Jónatansson: Það var í annari merkingu, að jeg talaði um kepni.) Jeg veit ekki til, að kepni hafi komið fram í tollmálum hjer hjá öðrum en fylgjendum kolafrumv. Þeir voru spurðir hvort þeir vildu ekki bíða dálítið með kolafrumv. En við það var ekki komandi. Það mátti ekki svo mikið, sem fara til nefndar. Það var drifið til neðri deildar. Þetta er sú eina kepni, sem bólað hefur á hjer í deildinni í þessum málum. Jeg efa ekki, að það hafi verið samfæring þeirra, að kolatollurinn væri bezta leiðin, og að þeim hafi gengið gott eitt til. En jeg er á sömu skoðun og háttv. 3. kgkj. þm. um, að það frumv. hafi verið enn ranglátara en þetta frumv. Um þetta frumv. má segja, að sætt sje sameiginlegt skipbrot. Ranglæti þessa frumvarps kemur niður á öllum stjettum þjóðarinnar, en ranglætið í hinu frumv. kemur ekki niður nema á nokkrum hluta hennar. Og þegar um þessi tvö úrræði, — kolatollinn eða þetta frumv. — var að tefla, vildi jeg því heldur þetta. En jeg skal geta þess, að ef þetta frumv. hefði fallið, hefði jeg tekið kolatollinn, heldur en að gera ekkert fjárhag landsins til hjálpar. En flutningsmenn vildu ekki bíða og sjá, hvað neðri deild gerði, sem bæði þykist vera og á að gera þungamiðja þingsins í fjármálunum.

Jeg man nú ekki eftir meiru, sem ég vildi segja. En jeg vil að síðustu undirstrika það, að frumv. þetta nær fram að ganga vegna brýnnar fjárþarfar landssjóðs en ekki af neinu öðru.