22.08.1912
Efri deild: 32. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 161 í B-deild Alþingistíðinda. (164)

37. mál, vörutollur

Jens Pálsson:

Háttv. 5. kgkj. þm. hefur svarað rækilega háttv. þm. V.-Sk., sem talaði kappsamlega móti frumv. og sá hvergi ljósan blett á því. Hann mintist á kolatollinn, og þó að hann komi ekki málinu við, þá skal jeg samt geta þess, að þótt hann hefði verið samþyktur eins og hann fór hjeðan úr deildinni, kr. 1,50 pr. tonn, þá hefði hann ekki gefið nema helming í landssjóð móts við það, sem þetta frumv. gefur. Alt tal um, að útlendingar borgi helming hans eða meir, er bygt í lausu lofti og naumast svaravert. Ef hann hefði numið 2 kr. á tonni, hefðu útlendar þjóðir að líkindum prótesterað gegn honum, og engin stjórn komið honum fram, eftir þeim undirtektum að dæma, er kolafrumv. milliþinganefndarinnar fjekk.

Háttv. þm. V.-Sk. talaði um, að hjer væri um að ræða ókunna stefnu og ókannað fyrirkomulag, er þjóðin hefði ekki haft færi á að hugsa neitt um. Á þingmálafundunum 1911 og 1912 var þó mál þetta á teningnum og var víða samþykt, að taka því, sem hins skásta, er kostur væri á. Og nú á seinustu þingmálafundunum, sem haldnir voru í mínu kjördæmi, — Hafnarfirði og Keflavík og sama var hljóðið í bændunum í Mosfellssveit, — var farmgjaldið samþ. Jeg vildi fá þá í Mosfellssveitinni til að samþykkja innflutningsgjald og útflutningsgjald, eins og farið var fram á í frumv. okkar hjer í deildinni, en við það var ekki komandi. Þeir vildu ekkert nema þetta, sem þetta frumv. ákveður, eða eitthvað þvílíkt.

Þá talaði háttv. sami þm. mikið um, að hætta væri á, að vörum yrði laumað inn í öðrum tollflokkum, en þær eftir frv. ættu að vera í. En jeg skil ekki, hvernig það má verða. Jeg held, að sje lítil hætta á, að menn fari að flytja kornvöru, kol, salt eða gaddavír inn í öðrum flokki en þessar vörur eiga að vera í, eða þá að menn fari að dylja eitthvað í þessum vörum, til þess að komast hjá tollgreiðslu. Það er einmitt kostur frumvarpsins, hve ilt er að hafa tollsvik í frammi eftir því. Vörur verða ekki sviknar inn í öðrum tollflokkum en þær eiga heima í, án þess að þær skemmist til stórra muna og að tap verði á slíkum svikum.

Þá talaði háttv. þm. um þær skyldur, er hvíldi á þingmönnum, að gera lögin rjettlátlega úr garði. Jeg held, að það verði fjarska ervitt, að semja tollfrumvarp, þar sem fulls rjettlætis er gætt, og það hefur ekki tekizt í neinum þeim frumvörpum, er legið hafa fyrir þessu þingi, og jeg veit ekki til, að það hafi neinstaðar í heiminum tekizt til þessa dags, að ná fullu rjettlæti í skattamálum.

Þá talaði háttv. þm. Árn. um póstböggla, að hann gæti ekki felt sig við ákvæðið um tollinn af þeim. Þyngdin á þeim má ekki vera meira en 5 „kíló“. Ef það ætti nú að fara að leggja hátt gjald á þessar sendingar, væri fjölda manna fyrirmunað að sendast á smágjöfum og vinasendingum. Þeir hafa mátt senda smávegis svona síðan fast póstsamband komst á, og þeim mönnum mundi verða það viðkvæmt, ef nú ætti að fara að skerða um 50 ára gömul rjettindi þeirra, sem þeir hafa alizt upp við og lengi notað.

Háttv. þm. Árn. var mjög trúaður á kolatollinn og var vongóður um aðgerðir neðri deildar í því máli. En jeg veit með vissu, að það frv. á sjer enga lífsvon í neðri deild.

Háttv. þm. vildi og taka hart á neðri deild fyrir aðgerðir hennar í tollmálunum, einkum fyrir seinlæti hennar þar. En mjer lízt eigi byrvænlegt, að vera að sakast um orðna hluti. Hitt er nær að reyna, að ráða fram úr þvÍ, sem fyrir hendi er. — Háttv. 5. kgk. þm. Talaði um, að innviðirnir í þessu frv. væru fúnir, en jeg held, að það sje samt ekki annað við þetta að gera, en reyna þá næstu 2—3 árin, þótt feysknir sjeu, og þá er að reyna að byggja betur, ef þessi bygging dugir ekki.

Þá mintist háttv. 5. kgk. þm. á brtill. við niðurlag 1. gr. um, að brot úr tolleiningu skuli reiknast sem tolleining, og taldi mikla bót að því. Jeg hef nú leitað mjer vitneskju um þetta, og jeg held, að hjer sje engin hætta á ferðum, þótt br.till. verði ekki samþykt. Jeg talaði um þetta við æfðan innheimtumann, bæjarfógetann í Reykjavík. Hann sagði, að ef það kæmi fyrir, að einhver fengi mikið sent af smástykkjum og kössum, er næmi hvert minna en helmingi tolleiningar, yrði alt talið saman og hlutaðeigandi látinn gjalda af því. Við þetta sýnist mjer, að hættan hverfi. Auk þess er þess að gæta, að það mundi ekki borga sig, að senda vörurnar í smástykkjum, því að minsta „fragt“ er tiltölulega hærri, heldur en hún er, þegar um stærri sendingar er að ræða. Minsta „fragt“ er kr. 1,35, en á 50 kgr. er hún kr. 1,55 -10%. Þegar þessa er gætt, er ástæðan til br.till. nefndarinnar að mestu horfin.

Að því, er snertir hina efnisbreyting nefndarinnar við 6. lið, 1. gr., að í stað 1 kr. komi 50 aurar, þá mælir það í fyrsta lagi móti henni, að hún kostar landssjóð 30—40 þús. kr., ef hún kemst í gegn, og það munar um þann skilding, ekki sízt er þörfin á fje er eins mikil og nú er hún. Og í öðru lagi mælir það á móti henni, að engin vissa er fyrir, að frv. gangi fram í Nd., ef það fer þangað aftur. Og þó að æskilegt væri, að lækka toll á nauðsynlegum atvinnurekstursvjelum og þess háttar hlutum, er það hinsvegar viðurkent, að megnið af þessum tolli kemur ekki ranglátlega niður.

Um brtill. um borgun til innheimtumanna mun háttv. 4. kgk. þm. hafa rjett fyrir sjer, að öll sanngirni mælir með henni. En með því að lítil von er um, að þessi breyting verði samþ. í háttv. Nd., þá vona jeg, að háttv. 4. kgk. og hans háttv. fylgismenn geri þetta ekki að kappsmáli; því það gæti orðið til þess að stofna málinu í hættu. Með heimild gefinni af meiri hluta nefndarinnar, — flest-öllum nefndarmönnum — tek jeg, ef enginn nefndarmaður mótmælir, breytingartillögurnar aftur, að áskildu því, að tvær nefndarprentvillur verði leiðrjettar í texta laganna. — Úr því ekki er mótmælt, tek jeg sem framsögumaður breytingartillögur nefndarinnar aftur.