13.08.1912
Efri deild: 23. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 391 í B-deild Alþingistíðinda. (1641)

71. mál, kolatollur

Steingrímur Jónsson:

Háttv. sessunautur minn, 6. kgk. virðist vera á nokkuð annari skoðun um þetta mál, en aðrir hátt. þingdm. Hann telur það aðalkostinn við frv., að það muni verða til þess, að fæla útlendinga frá landinu. Jeg gæti ef til vill orðið honum samdóma í þessu máli, ef það væri rjett, að útlendingum væri með því bægt frá veiðum í landhelgi; en jeg þykist hafa sýnt fram á, að svo er ekki.

Hann vildi beina því til mín og ýmsra annara þingdm., að við værum hræddir við að tolla vörur, sem útlendingar notuðu. Það voru ekki mín orð; jeg sagði að eins, að þessi 2 kr. tollur yrði oss lítill tekjuauki, ef útlendingar hættu að taka kol sín hjer, og það álít jeg ver farið.

Háttv. þm. V.-Sk. spurði, hvað yrði af ríkinu, ef menn væru stöðugt með þetta útlendingamas á vörunum. Því skal jeg svara með sömu spurningu: Hvað verður af ríkinu, ef við verðum oss til athlægis í augum annara þjóða?

Er það ekki einmitt eitt höfuðskilyrðið, að við reynum að gæta þess vandlega í löggjöf vorri, að stíga ekkert það spor, sem veikt getur virðing vora í augum erlendra þjóða. Jeg er ekki í neinum vafa um, að svo er.

Það fyrsta, sem merkustu stjórnmálamenn annara þjóða gera, er að reyna að afstýra öllu því, er orðið getur útlendingum til tjóns, og spilt fyrir samvinnu þjóðanna. Jeg get t. d. bent á, að útlendingar, sem hafa verið að reyna að koma hjer á fót verksmiðjum, til þess að vinna áburð úr, fiskúrgangi, mundu trauðla þora að leggja út í slíkt, ef þeir ættu á hættu, að á framleiðsluvöru þeirra yrði óðara smelt mjög háum skatti. Sumir háttv. þm. vefengdu, að þetta gjald mundi nema 14%, eins og jeg sagði við 1. umr. Það getur verið, að fyrir innlenda menn muni það ekki svo mörgum %, því fyrir þá er ; verð kolanna hærra. En gagnvart útlendingum verður það ekki lægra — það getur enginn vefengt.

Háttv. 6. kgk. tók það fram, að þótt 2 króna gjaldið kæmi allhart niður á fátæklingunum, þá mundi ekki frv. um gjald af allri verzlun koma mýkra niður á þeim. Þetta er ef til vill að nokkru leyti rjett, en munurinn er sá, að frumv. um árgjald af verzlun er ætlað að bæta alveg úr tekjuhalla landssjóðsins, en þetta frv. gerir það að eins að nokkru leyti.

Jeg get viðurkent, að einn af kostunum við frv. er sá, að innheimtan verður ljett, en hún verður það þó því að eins að ákvæðum 2. gr. sje breytt í þá átt, sem jeg gerði ráð fyrir, nefnilega að lögreglustjórum að eins verði gert að skyldu, að innheimta gjaldið á höfnum inni.

En að ekki sje hægt, að smeygja sjer undan gjaldinu, tel jeg mjög vafasamt. — Það er t. d. algengt á Siglufirði, að kolum er umskipað úti í fjarðarmynninu, og koma þau því aldrei í land eða inn á sjálfa höfnina, og er þá auðsætt, að lögreglustjórar geta ekki gert við slíku. Því þá þyrftu skipin að liggja við festar á höfnum með lögregluvald yfir þeim.

Mjer fanst háttv. þm. V.-Sk. og 6. kgk. vilja beina því til okkar, að við vildum ekkert gjald af kolum. — En þetta er ekki rjett, því við gengum einmitt inn á, að hækka tollinn; (sbr. 2% gjaldið í frumv. um árgjald af verzlun og viðskiftum við útlönd). En hærra gjald en samkvæmt br.till. vil jeg undir engum kringumstæðum hafa, úr því önnur úrræði eru til, til þess að afla landssjóði tekna, enda væri slíkt naumast samboðið þinginu. Þetta gjald, sem við göngum inn á, svarar að því; er verðhækkun kolanna snertir, til þess, sem milliþinganefndin áleit að mætti hafa upp úr einkasölu á kolum. Því það er auðsætt, að tollur hækkar kolaverðið mun meira, en gjald til landssjóðs samkvæmt einkasölulögunum, því nokkuð af því gjaldi er tekið af verzlunarágóða kaupmanna.