31.07.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 142 í B-deild Alþingistíðinda. (1653)
17. mál, eftirlit með þilskipum
Framsögum. (Lárus H. Bjarna- son):
Við 1. umr. þessa frv. leitaðist eg við að gera grein fyrir því, hver afbrigði það fæli í sér frá lögunum 1903, og er því eigi þörf að fara framar út í það.
Nefndin er sammála um það, að frv. sé gott, og þær breytingar, sem hún hefir lagt til að gera á því, eru mestmegnis orðabreytingar eða leiðréttingar á prentvillum. Orðabreytingar eru 1., 2., 3. og 6. br.till. á þgskj. 75, 4. br.till. er leiðrétting á prentvillu. 5. br.till. er um að skeyta við 5. gr. þessum viðauka: „Sama sekt liggur við vanrækslu útgerðarmanns, þó að ekki hafi orðið af tjóni.“ Þessa ákvæðis er er ekki stranglega þörf, en er tekið upp til þess að taka af allan vafa.
Við fyrirsögnina er lagt til að skeytt verði inn „opnum“ eftir „og“. Kemur það til af því, að í 1. gr. frv. er greint á milli þilskipa og annara skipa. En þilskip eru öll þau skip, sem þiljur eru í, hvort heldur eru seglskip eða vélaskip.
Þessar breytingar eru allar óverulegar, og ræður nefndin deildinni til að samþykkja frv. með téðum breytingum.