31.07.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 150 í B-deild Alþingistíðinda. (1659)

17. mál, eftirlit með þilskipum

Framsm. (Lárus H. Bjarnason):

Hv. þm. Vestm. (J. M.) tók það upp aftur, að skip mundu jafnaðarlega vera vel útbúin hér. En hversu vel sem skipin kunna að vera útbúin, má ekki láta skoðun falla niður. Það verður að ganga úr skugga um að svo sé, og gæta hagamuna þeirra, sem á skipunum eru og eiga líf sitt að miklu leyti undir því að þau séu vel útbúin. Hér er ekki verið að bregða neinni sérstakri útgerð um vondan útbúnað.

Hann færði þá ástæðu fyrir, að hann vildi ekki láta skoðunarmenn hér skoða skip í Hafnarfirði og Gullbringu- og Kjósasýslu, að þeim þyrfti að greiða ferðakostnað. Eg hefi talað við annan skoðunarmanninn hér, og sagðist hann ekki ætlast til neins sérstaks ferðakostnaðar. Fyrst skoðunarmenn láta sér lynda að fá enga ferðapeninga, þá vænti eg þess, að hv. þm. Vestm. (J. M.) geri sig ánægðan með það fyrir þeirra hönd. Honum fanst það nokkurskonar lítilsvirðing fyrir Gullbringu- og Kjósarsýslu, að skip þaðan væru skoðuð af skoðunarmönnunum hér. Það var alls ekki meining okkar flutningsmannanna, að kasta neinni rýrð á þetta kjördæmi, en vér litum svo á, að hér mundi vera beztur kostur hæfra skoðunarmanna, og að æskilegt væri að skoðarmenn hér gætu náð til að skoða sem flest skip á landinu. Við vildum ekki gera sjómönnunum lægra undir höfði heldur enn þorskinum, sem er skoðaður af völdum vel launuðum mönnum af landssjóði.

Eg er hv. þm. Ak. (G. G.) þakklátur fyrir uppástunguna, þó hjá honum kenni nokkuð líks bragðs og hjá háttv. þm. Vestm. (J. M.), of mikils tillits til útgerðarmanna. Hv. þm. þótti skoðunargjaldið of hátt. Þetta er ekki svo mikið gjald, þegar litið er til þess, að skipin eru skoðuð að eins einu sinni á ári. Nú er líka ætlast til þess, að skoðunin verði miklu ítarlegri heldur en hingað til hefir verið, meiri tími og meiri þekking heimtuð af skoðunarmönnum og þess vegna sjálfsagt að greiða þeim hærra kaup. Til þessa hafa skip verið skoðuð úti á sjó, oft og tíðum með meiri eða minni varningi innanborðs, ekki skoðuð að neðan og ekki farið niður í þau. Með þessu frv. er ætlast til að skipin séu grandskoðuð tóm, dregin á land ef þurfa þykir, rifnar upp fóðurþiljur að innan ef eitthvað þykir grunsamt og grandskoðuð að utan frá skjólborði til kjalar. Auk þess er stjórninni heimilað að setja enn nákvæmari reglur um skoðunina. Þetta er alt öðru vísi skoðun, heldur en þessi kattarskoðun sem tíðkast hefir hingað til. (Guðlaugur Guðmundsson: Þekkist ekki á Akureyri). Það getur vel verið að skip séu jafnan vel og samviskusamlega skoðuð á Akureyri, en það á sér — því miður — ekki stað alstaðar.

Annars mætti ef til vill eins og hv. þm. Ak. (G. G.) sagði, hafa skoðunargjaldið mismunandi og miða það við stærð skipanna. Væri æskilegt að þm. kæmu sem fyrst fram með brt. sínar, ef þeir vilja breyta einhverju í frv., svo nefndin hafi tíma til athugana til 3. umr. og svara þeim.