22.08.1912
Efri deild: 32. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 166 í B-deild Alþingistíðinda. (166)

37. mál, vörutollur

Steingrímur Jónsson:

Háttv. framsm. lýsti yfir því, að hann tæki aftur breyt.tillögurnar. Og vil jeg lýsa yfir því, að við tökum þær ekki upp. Þetta frumvarp er og hefur verið mesti gallagripur; svo að hreinustu neyðarúrræði eru að samþykkja það. Hversu fögur hugsjón, sem kann að hafa vakað fyrir höfundi þess. Jeg hef svo ekki fleira að segja.