31.07.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 152 í B-deild Alþingistíðinda. (1660)
17. mál, eftirlit með þilskipum
Ráðherrann (H. H.):
Hv. framsm. (L. H. B.) lýsti því yfir að hann hefði borið þetta frumv. undir nefnd í Ed., sem hefir til meðferðar frv. til laga um eftirlit með þilskipum, sem notuð eru til fiskiveiða og vöruflutninga, en sagði þó, að þetta frv., sem hér liggur fyrir, væri óviðkomandi þeim frumvörpum, sem eru á ferðinni í Ed. Þetta hygg eg að sé ekki á sem beztum rökum bygt. Ýmislegt í frv. um öryggi skipa er alveg um sama efni og hér er um að ræða, og ættu þessi frv. helzt að renna saman í eitt. Það virðist hafa verið óþarft, að vera að keppast við að koma þessu máli á dagskrá hér, áður en frv. kom frá Ed. Það getur meira að segja orðið hættulegt fyrir framgang góðs máls, að verið sé að streitast við það í báðum deildum í senn. Úr því sem komið er, væri æskilegt að nefndirnar í báðum deildum rynnu saman.