15.07.1912
Sameinað þing: 1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 6 í B-deild Alþingistíðinda. (1673)
Fyrsti fundur í sþ.
Úr kirkjunni gengu þingmenn aftur til alþingishússins, fundarsals neðri deildar. Gekk ráðherra Íslands, Kristján Jónsson, til forsetasætis og ávarpaði þingið svofeldum orðum:
„Síðan er alþingi kom síðast saman í þessum sal, hefir sá atburður orðið, sem varpað hefur skugga sorgarinnar yfir hvert eitt heimili á þessu landi, þar sem er hið sviplega fráfall konungs vors, Friðriks hins áttunda. Dagar ríkis hans voru ekki margir, eftir því sem jafnaðarlega er talið, aðeins 6 ár, en á þessum stutta tíma auðnaðist honum að ná þeim tökum á hjörtum Íslendinga, sem enginn konunga vorra fyr hefir náð. Þetta var og að verðleikum. Hinn látni konungur hafði aflað sér meiri þekkingar á Íslandi, hinni íslenzku þjóð og íslenzkum málum yfirleitt, en nokkur annar danskur maður, er eg hef haft kynni af, og þessari þekkingu var samfara góðvilji hans til lands og þjóðar, er var alveg óvenjulegur og lýsti sér í hvívetna. Hvert eitt íslenzkt mál lét hann til sín taka, og hann lagði kapp á að hrinda hverju voru máli fram á þann veg, sem oss mátti fremst að gagni verða. Honum var það vissulega áhugamál, og það var einbeittur vilji hans, að styðja og efla alt það, er til framfara horfði fyrir þessa þjóð og þetta land. Fyrir því er missir vor svo mikill, þar er vjer mistum hans. En það vekur oss jafnframt gleði að minnast hins góða konungs. Vér fögnum því, að konungsstjórn hans verður jafnan til eftirdæmis fyrir eftirmenn hans, fögur og gagnsamleg fyrirmynd fyrir þá. Minning hins lofsæla konungs mun lengi lifa í hjörtum Íslendinga.“
Þingmenn stóðu upp úr sætum sínum og hlýddu á þessa tölu standandi.
Síðan las ráðherra upp eftirfylgjandi konungsbréf:
Vjer Friðrik hinn áttundi af guðs náð Danmerkur konungur, Vinda og Gauta, hertogi í Sljesvík, Holsetalandi, Stórmæri, Þjettmerski, Láenborg og Aldinborg
Gjörum kunnugt: Vjer höfum allramildlegast ákveðið, að alþingi skuli koma saman til aukafundar mánudaginn 15. júlí þ. á., og viljum Vjer um þingtímann allramildilegast kveða svo á, að alþingi megi ekki setu eiga lengur en 6 vikur.
Um leið og Vjer birtum þetta Vorum kru og trúu þegnum á Íslandi, skipum Vjer öllum þeim, sem setu eiga að hafa á tjeðu alþingi, að koma nefndan dag til Reykjavíkur kaupstaðar, og verður þar þá sett alþingi, eftir að guðsþjónusta hefur farið fram í dómkirkjunni.
Eftir þessu eiga allir hlutaðeigendur sjer að hegða.
Gefið á Amalíuborg 6. maí 1912.
Undir Vorri konunglegu hendi og innsigli.
Í nafni konungs
Christian krónprinz.
(L. S.
Kristján Jónsson.
Opið bréf, er stefnir saman alþingi til aukafundar 15. júlí 1912.
Vjer Christian hinn tíundi af guðs náð Danmerkur konungur, Vinda og Grauta, hertogi í Sljesvík, Holsetalandi, Stórmæri, Þjettmerski, Láenborg og Aldinborg.
Um leið og Vjer hjer með veitum yður, sem ráðherra Vorum fyrir Vort land Ísland, umboð til þess í Voru nafni að setja alþingi það, er koma á saman til aukafundar mánudaginn 15. júlí næstkomandi, viljum Vjer, jafnframt og þingið við þetta tkifri kemur saman í fyrsta skifti eftir lát Vors ástsla föður, Friðriks konungs hins áttunda, fela yður að bera fulltrúum Vorrar íslenzku þjóðar á alþingi Vora konunglegu kveðju.
Það er örugg von Vor, að Oss auðnist að taka höndum saman við fulltrúa þjóðarinnar til samhuga starfs fyrir land og lýð, og að það trúnaðarsamband milli konungs og þjóðar, er tengdi föður Vorn ástkran svo nánum böndum við Íslendinga, megi ljetta þetta starf og með guðs hjálp veita Oss krafta og þrek í Vorri ábyrgðarþungu konungsstöðu. Vjer hugsum með gleði til þess, að þetta trúnaðarsamband megi styrkjast enn betur, er Oss veitist tkifri tíl að skja Ísland heim.
Ritað á Amalíuborg 14. júni 1912.
Undir Vorri konunglegu hendi og innsigli.
Christian R.
(L. S.)
_______________
Kristján Jónsson.
Til herra Kristjáns Jónssonar, kommandörs af dannebrog. Vors ráðherra fyrir Ísland.
Lýsti þá ráðherra því yfir, að alþingi Íslendinga vri sett.
Stóð þá upp Sigurður Stefánsson, þingmaður Ísafjarðarkaupstaðar, og mælti: Lengi lifi konungur vor Kristján hinn tíundi, og tóku þingmenn undir það með í níföldu húrra.
A. Konungkjörnir þingmenn:
1. Júlíus Havsteen
2. Eiríkur Briem
3. Ágúst Flygenring
4. Steingrímur Jónsson
5. Stefán Stefánsson
6. Björn Þorláksson
1592
B. Þjóðkörnir þingmenn:
Benedikt Sveinsson, þm. N.-Þing.
Bjarni Jónsson, þm. Dal.
Björn Jónsson, þm. Barð.
Björn Kristjánsson 1. þm G.-K.
Eggert Pálsson, 2. þm. Rang.
Einar Jónsson, 1. þm. Rang.
Guðjón Guðlaugsson, þm. Strand.
Guðlaugur Guðmundsson, þm. Ak.
Halldór Steinssen, þm. Snæf.
Hannes Hafstein, 2. þm. Eyf.
Jens Pálsson, 2. þm. G.-K.
Jóhannes Jóhannesson, 1. þm. N.-Múl.
Jón Jónatansson, 2. þm. Arn.
Jón Jónsson, 2. þm. Rvík.
Jón Magnússon, þm. Vestm.
Jón Ólafsson, 2. þm. S.-Múl.
Jósef Björnsson, 2. þm. Skgf.
Kristján Jónsson, þm. Borgf.
Lárus H. Bjarnason, 1. þm. Rvík.
Magnús Andrjesson, þm. Mýr.
Matthías Ólafsson, þm. V.-Ísf.
Ólafur Briem, 1. þm. Skgf.
Pjetur Jónsson, þm. S.-Þing.
Sigurður Eggerz, þm. V.-Sk.
Sigurður Sigurðsson, 1. þm. Árn.
Sigurður Stefánsson, þm. Ísaf.
Skúli Thóroddsen, þm. N.-Ísf.
Stefán Stefánsson, 1. þm. Eyf.
Tryggvi Bjarnason, 2. þm. Húnv.
Valtýr Guðmundsson, þm. Seyðf.
Þórarinn Jónsson, 1. þm. Húnv.
Þorleifur Jónsson, þm. A.-Skaftf.
Tveir þingmenn voru ókomnir: Einar Jónsson, 2. þm. N.-Múl. og Jón Jónsson, 1. þm. S.-Múl.
Kvaddi þá ráðherra Júlíus Havsteen, 1. konungkjörinn þingmann, sem var elztur þingmanna, til að taka forsetasti og stýra prófun kjörbrjefa og kosningu forseta. Tók hann sjer til aðstoðar Jón Magnússon, þingmann Vestmannaeyinga og Sigurð Stefánsson, þingmann Ísafjarðarkaupstaðar.
Þá var öllum þingmönnum skift í 3 deildir til að prófa kjörbrjef nýkosinna og nýskipaðra þingmanna, og urðu þessir þingmenn í hverri deild:
1. deild.
Björn Jónsson,
Eiríkur Briem,
Guðjón Guðlaugsson,
Hannes Hafstein,
Jóhannes Jóhannesson,
Jón Jónatansson,
Matthías Ólafsson,
Ólafur Briem,
Skúli Thóroddsen,
Stefán Stefánsson, 1. þm. Eyf.,
Steingrímur Jónsson,
Þórarinn Jónsson,
Þorleifur Jónsson.
2. deild.
Ágúst Flygenring,
Benedikt Sveinsson,
Bjarni Jónsson,
Björn Þorláksson,
Guðlaugur Guðmundsson,
Jens Pálsson,
Jón Jónsson 2. þm. Rvk.,
Jósef Björnsson,
Júlíus Havsteen,
Lárus H. Bjarnason,
Sigurður Eggerz,
Sigurður Sigurðsson.
3. deild.
Björn Kristjánsson,
Eggert Pálsson,
Einar Jónsson, þm. Rangv.,
Halldór Steinssen,
Jón Magnússon,
Jón Ólafsson,
Kristján Jónsson,
Magnús Andrjesson,
Pjetur Jónsson,
Sigurður Stefánsson,
Stefán Stefánsson, 5. kgk.,
Tryggvi Bjarnason,
Valtýr Guðmundsson.
Deildirnar gengu síðan burt úr salnum til að sinna störfum sínum, og var fundi frestað á meðan. Að nokkrum tíma liðnum komu deildirnar aftur í salinn og var fundi haldið áfram. Framsögumenn kjörbrjefadeildanna skýrðu því næst frá árangrinum af rannsóknum sínum á þessa leið: