27.07.1912
Efri deild: 10. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 26 í B-deild Alþingistíðinda. (17)
4. mál, breyting á alþingistíma
Einar Jónsson:
Jeg ætla að bæta fám orðum við síðustu ræðu mína út af hinni síðustu ræðu. Háttv. þm. mintist á, að byrja þing 15. nóv. En þá getur líka verið áhætta, að menn komist ekki til þingsins á ákveðnum tíma. Menn muna líklega eftir því haustið 1910, þegar „Flóra“ hraktist vestur undir Grænland og kom hingað hálfum mánuði eftir áætlun, brotin og löskuð. Sumir munu og minnast fjárskaðaveðursins 12.—15. okt. 1868. Þá daga hefði ekkert skip haldið ferð áfram hjer við land. Og þetta getur alt af komið fyrir. Því er það nauðsynlegt, að menn hafi þetta viku til hálfan mánuð að hlaupa upp á, til þess að vera vissir um, að komast til þings á rjettum tíma, ef þing er að vetri. Allar skipaferðir fara að verða óvísari, þegar kemur fram í október og landferðir torveldari.
Þingið fyrri hlut vetrar er að mínu áliti betra en sá tími, sem nú er lögboðinn, því að þá hindrast menn þó síður á ferðum sínum. Í janúar—febrúar er sjaldan hafís fyrir landi; en þá geta þó frost hamlað skipagöngum. Og alt af mun talsverður kostnaðarauki að því, að hafa vetrarþing, vegna þess m. a. að lengri tíma þurfa menn að ætla sjer til ferðanna, hvort sem þingi er ætlað að byrja 15. nóv. eða 15. febr., ef þeir eiga að vera vissir um, að komast í tæka tíð. Því jeg tel það enga reynslu, þó þessir 2 síðustu þingvetrar hafi verið svo góðir, að engin vandræði hafa hlotizt af vetrarferðunum.