12.08.1912
Efri deild: 22. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 174 í B-deild Alþingistíðinda. (187)
51. mál, íslenskt peningalotterí
Steingrímur Jónsson:
Frumv. þetta, sem hin háttv. Nd. hefur sent hingað, er um svo þýðingarmikið efni, og svo þýðingarmikið, ef það kemur til framkvæmda, að jeg tel sjálfsagt, að það sje athugað nánar hjer í deildinni, og vil þess vegna leggja til, að frumv. verði, að þessari 1. umr. lokinni, vísað til nefndarinnar um árgjald af verzlun og viðskiftum við útlönd, því jeg áleit, er sú nefnd var kosin, að hún ætti að athuga skattafrumv. þau, er hingað berast frá háttv. Nd.
Jeg tel sjálfsagt, að nefndin eigi tal við þá, er einkaleyfi þetta eiga að fá, og álit, að frumv. stafi engin hætta af því, að nefnd sje skipuð í það, það þurfi ekki að seinka meðferð þess til muna.