17.08.1912
Efri deild: 27. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 175 í B-deild Alþingistíðinda. (190)

51. mál, íslenskt peningalotterí

Jens Pálsson (framsögumaður):

Mál þetta, sem hjer liggur fyrir, er komið hingað frá háttv. Nd. eftir allrækilega meðferð þar. En með því að nefndin í háttv. Nd. klofnaði í tvent, þá samdi hvor hlutinn fyrir sig ítarlegt nefndarálit, og urðu um þau hinar snörpustu umræður. Og vænti jeg þess, að flestir hinna háttv. þingmanna hjer í deildinni hafi þá þegar nokkuð kynzt málinu.

Oss þótti því ekki ástæða til þess, að fara langt út í málið við 1. umr. hjer í háttv. deild; heldur var því þegar í stað með rökstuddri tillögu vísað til nefndar. — Og nú hefur nefndin athugað frumv. og haft sáralítið við það að athuga. — Eiginlega ekki annað, en gefa nokkrar bendingar, viðvíkjandi 2. gr. frumv. Og þar sem nú málið er orðið svona kunnugt, eins og jeg þegar hef tekið fram, álit jeg ekki hrýna þörf á ítarlegri framsögu.

Eins og öllum er kunnugt, er stjórninni í frumv. gefin heimild til þess, að veita um vissan, tiltekinn tíma, þrem háttv. herrum, sem nefndir eru í 1. gr. laganna, leyfi til þess að stofna peningalotterí fyrir Ísland, í 2 flokkum, og hlutatala hvors flokks ekki hærri en 50,000, en beggja samtals 100,000. Hlutunum má skifta niður í áttundir, helftir og fjórðunga, og er það sama hlutaskifting, sem á sjer stað í Klasselotteríinu danska. Dráttum er ætlað að fara fram í Kaupmannahöfn og lotteríinu á að stjórna þaðan. Þetta kann sumum ef til vill að þykja óviðfeldið, þar sem lotteríið er fyrir Ísland. En þetta fyrirkomulag þykir leyfishöfunum væntanlega óhjákvæmilegt vegna þess, hve fjarri Ísland liggur heimsmarkaðinum, og hversu öll brjefaviðskifti hingað og hjeðan eru strjál og örðug.

Það er áskilið, að í stjórn lotterísins skuli helmingurinn vera Íslendingar, og þar af minst tveir vel færir lögfræðingar. Einkaleyfistíminn er 30 ár; en því fylgir sá kostur, að stjórnin getur tekið leyfið aftur, að liðnum helmingi tímabilsins, ef hinu íslenzka löggjafarvaldi þykir ástæða til þess.

Einkaleyfishafarnir eiga skilyrðislaust að greiða landssjóði að minsta kosti 138.000 franka á misseri hverju. Sje frankinn talinn jafngilda kr. 0,72, svo sem Koloniallotteríið danska telur, nemur þetta misserisgjald kr. 99.360,00 — og árgjaldið eftir því kr. 198.720,00.

Minna en þetta árgjald mega þeir aldrei greiða; þetta er lágmark gjaldsins til landssjóðs. En með því að svo er til skilið, að þeir skuli greiða landssjóði Íslands gjald, er nemi 4% af iðgjöldunum fyrir hluti þá, er seljast í hvorum flokki, þó ekki minna en 138 þúsund franka á misseri, þá fer svo, ef þeim gengur vel að útvega sjer markað fyrir hlutina, og fá selt meira en nemur þeirri upphæð, er þessir 138 þús. frankar eru 4% vextir af, af undir eins og þeir fá selda fleiri hluti, en þeirri upphæð nemur, þá fær landssjóður meira afgjald, en lágmarkinu kr. 198.720,00 nemur. — Þegar svo er komið, sem ekki þarf ráð fyrir að gera fyrst í stað, að þeir fá selt helming lotteríishlutanna, fær landssjóður á ári með þessu 4% afgjaldi af 216 þús. króna; en takist þeim, er stundir líða, að selja 2/3 af hlutunum, fær landssjóður með sama 4% afgjaldi kr. 400,000 á ári.

Aukatekjur ánafnaðar landssjóði í frv. eru hálfir þeir vinningar, sem ekki er vitjað í tæka tíð. — Einhverjar geta aukatekjur þessar orðið, en óvissar eru þær, og leiði jeg minn hest frá að gera nokkra áætlun um þær.

Tryggingar þær, sem áskildar eru í lögunum, eru tvær.

Trygging fyrir því, að premíurnar verði borgaðar út. Tryggingarsjóður sá, er til skilinn er fyrir því, er næsta mikill, og skal liggja geymdur í Þjóðbankanum í Kaupmannahöfn eða Landsbanka Íslands, kjósi ráðherra það heldur. Það er á hans valdi, og er það kostur.

Trygging skal líka sett fyrir því, að landssjóður fái hið tilskylda afgjaldsitt. Nefndin álítur tryggingarnar góðar að öllu leyti, og sje ekkert að þeim að finna.

Hinsvegar hefur nefndinni þótt 2. gr. nokkuð athugaverð; í henni er leyft, að selja megi alt að 1000 hluti hjer á landi, en þar sem þessi verzlun, jeg nefni lotteríið verzlun, er meiri fjárhættu bundin en venjuleg viðskifti manna á meðal, og lotterí má telja lítt kunnugt öllum almenningi, þótt nokkrir Íslendingar hafi um nokkurt skeið keypt lotteríseðla í útlendum lotteríum, þá lítur nefndin svo á, að ekki sje hyggilegt nje gætilegt, að leyft sje, að hleypa svo mörgum hlutum út á sölumarkaðinn hjer á landi fyrst um sinn, og lætur því í ljósi þá ósk sína, að ráðherra takmarki töluna að verulegum mun alt að fimm fyrstu árin. Nefndin álítur þetta vera á valdi stjórnarinnar; þetta sje samningsatriði milli stjórnarinnar og leyfishafanna, og svo líta og leyfishafar líka á, enda stendur í frumv. „alt að 1000 hluti“. Sökum þessa áleit nefndin ekki þörf á að gera brtill. við 2. gr., þar sem hún treystir stjórninni fyllilega til að takmarka hæfilega söluna hjer á landi.

Nefndinni er kunnugt, að mörgum þykir það miklu máli skifta, hvort víst sje, að lotteríið komist á fót, og hvenær það muni geta tekið til starfa. Hún hefur um þetta leitað frjetta til væntanlegra leyfishafa, og getið þess í nefndarálitinu, er hún varð um þetta vísari hjá þeim.

Jeg hef sjeð þess getið í blaði einu, að það væri rjett og sanngjarnt, að procenturnar, sem gjalda ætti, hækkuðu að því skapi, sem fleiri hlutir seldust, ella væru yfirleitt hærri, og landssjóði þar með áskilið hærra afgjald af einkaleyfinu. En eftir upplýsingum þeim, er formaður og skrifari nefndarinnar hafa aflað sjer, mun mega telja tvísýnt, hvort fyrirtækið borgi sig svo vel fyrst um sinn, að þessi krafa sje rjett og sanngjörn; að minsta kosti ekki, nema lágmarkið 138 þús. kr. á misseri sje afmáð; en að því vill nefndin ekki ganga.

Vil jeg svo ekki fjölyrða meira um málið að sinni, enda býst jeg við, að fleiri taki til máls með og móti.