17.08.1912
Efri deild: 27. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 182 í B-deild Alþingistíðinda. (193)
51. mál, íslenskt peningalotterí
Jón Jónatansson:
Jeg ætla mjer ekki að tala mikið um þetta mál, þar sem mig brestur þekkingu og kunnugleika um flest atriðin, en þó er það eitt atriði sem jeg tel ekki hafa verið minzt nóg á, en sem tekið var fram í háttv. Nd. Þetta atriði er það, hvort það eitt, að landssjóð vanti fje, sje rjettmæt ástæða til að láta það ráða eingöngu, og að ekki verði litið á annað.
Nefndin í neðri deild telur lotterí alsstaðar vissa gróðalind, og sjeu öll sund lokuð, að landið reki slíkt fyrirtæki fyrir eigin reikning, og, að þau lotterí, sem fyrir sjeu, fullnægi ekki spilafíkn manna.
Mjer er spurn: Væri landssjóður ekki í fjárþröng, mundi þá þingið sætta sig við, að fá ekki meira en þetta? Mjer þykir það hálfóviðfeldið, að sæta hvaða kosti, sem boðinn er, að eins af því, að landið er í fjárþröng. En mjer finst það sannist hjer, að „litlu verður Vöggur feginn“. En jeg þykist vita, að það þýði ekki mikið, að koma hjer fram með breyttill. um hækkun á gjaldi því, er frv. ætlast til að leyfishafar greiði landssjóði. Jeg hef að vísu heyrt sagt, að væntanlegur leyfishafi hafi ekki viljað bjóða betri kosti en þetta, og að hætta sje á, að málið strandi, ef landssjóðsgjaldið verður hækkað, að leyfishafar gangi aldrei að þeim kosti. En mjer leikur efi á, að nokkru sje spilt, þótt málið strandaði í ár. Ef leyfishafar þurfa að græða fje, og lotteríið er mikill gróðavegur, sem lítill vafi virðist leika á, þykir mjer ekki ólíklegt, að þeir leituðu hingað aftur og byðu þá betri kosti. Mig brestur að vísu þekking til að skera úr, um hve mikið gróðafyrirtæki er hjer að ræða, og get því ekki dæmt um, hver líkindi eru á betra boði, en jeg byggi það á nefndaráliti Nd. um málið, að þetta fyrirhugaða lotterí sje „örugt gróðafyrirtæki“. En hversu stór gróðinn er, get jeg, sem sagt, ekki gert mjer hugmynd um.
Það sem mjer þykir helzt varhugavert við frv. er það, hve gjaldið í landssjóð er lágt. En það er, eins og jeg sagði, líklega árangurslitið, að reyna að breyta því. Fleira er og í frumv., sem jeg get ekki felt mig við. Og mjer er ekki ugglaust, að landsmenn kunni að leggja ofmikið fje í kaup lotteríseðla, og að þeim geti stafað hætta, af því að þessu leyti.
Jeg hef svo ekki meira að segja. Jeg vildi að eins vekja athygli á, hvort það væri rjett, að sæla fyrsta boðinu, sem væntanlegir leyfishafar bjóða, og hvort nokkur hætta væri á ferðum, þótt málið strandaði að þessu sinni.