17.08.1912
Efri deild: 27. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 187 í B-deild Alþingistíðinda. (196)

51. mál, íslenskt peningalotterí

Jens Pálsson (framsögum.):

Það getur vel verið, að jeg hafi misskilið hinn háttv. þingm. Skgf. En jeg skal aftur minna á það, að það eru 70%, sem í vinningunum liggja. Þá eru ekki eftir nema 30%. Jeg sýndi fram á það áðan, að það verður ekki mikið afgangs af því fje í ágóða, er allur kostnaður við rekstur og stjórn lotterísins er frá talinn. Það getur vel verið, að þjóðin tapi á þeim lotteríseðlum, sem seldir eru í landinu sjálfu, en svo fær hún tekjur af þeim seðlum, sem seldir eru um öll lönd, og hún fær ekki einungis eins mikið inn í landið af fje, og hún tapaði út úr því á seðlakaupum, heldur miklu meira.