13.08.1912
Efri deild: 23. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 199 í B-deild Alþingistíðinda. (213)

59. mál, þingfararkaup alþingismanna

Sigurður Stefánsson (framsögum.):

Játa skal jeg það, að ræða hins háttv. þingm. V.-Skaft. mundi þykja mjög hljómfögur og láta vel í eyrum, ef hún væri flutt á þingmálafundum þar austur frá, og ekki vil jeg lasta það, þó menn tali eins við kjósendur sína, eins og þeir tala hjer í þingsalnum, en það hafa verið til menn, og þeir eru sýnilega til enn, sem skjálfa ekki einungis fyrir útlendingum, eins og þingmaðurinn komst að orði í dag, heldur einnig fyrir kjósendum sínum, og sá skjálfti hefur oft bakað landinu óþarfa kostnað. Annars veit jeg ekki aðra menn óþarfari hjer á þingi, en þá, er hafa sífeldan skjálfta fyrir kjósendunum, því þó að kjósendurnir sjeu góðir og í alla staði hinir heiðvirðustu, og jeg vilji þá ekki lasta, þá hafa þeir jafnan þrengri sjóndeildarhring, en æskilegt er fyrir málefnin og landið í heild sinni. Þetta er ekki fremur hjer, á voru kæra landi Íslandi, heldur en í öllum öðrum löndum.

Hinn háttv. þm. játar, að allar aðalástæður nefndarinnar fyrir hækkun á þingfararkaupi sjeu rjettar. Hann játar í álitsskjali sínu, að peningar sjeu í lægra verði, en þegar þetta kaup var ákveðið, og með þessu játar hann það, að full sanngirni mæli með jafnvel meiri hækkun en þeirri, er nefndin og flutningsmenn frumvarpsins hafa farið fram á. Mjer þótti það kynlegt, er hinn háttv. þm. hjelt því fram, að þessi launahækkun mundi hafa í för með sjer fleiri launahækkanir, ef hún kæmist á. Veit hinn háttv. þm. þá ekki, hvenær þingfararkaupið var ákveðið, og við ástand hvaða tíma það er miðað? Þetta kaup er ákveðið 1843? Líklega eru engin launaákvæði vor eldri en svo, að þau sjeu ekki hjer um bil helmingi yngri en þetta ákvæði. Hin almennu launalög eru frá 1887. Læknalaunalögin eru frá 1899, sýslumannalögin frá 1877. Það er því ekki hægt, að halda því fram, að hækkun á þingfararkaupi hljóti að hafa í för með sjer breyting eða hækkun á launum annara starfsmanna landsins, af því að þessi launalög sjeu orðin eins úrelt og þingfararkaupslögin. Laun embættismanna eru miðuð við það ástand, er var í landinu, er þau voru samin; eru miðuð við yngra ástand og líkara því, sem nú á sjer stað, og eru því ekki orðin eins úrelt.

Háttv. sami þm. tekur það og fram í nefndaráliti sínu, að það sje óviðfeldið, að þingmenn auki dagpeninga sína, hækki sjálfir laun sín. En mjer er spurn: Hver á að gera það, ef þingið má ekki gera það? Eigum við að bíða eftir, að það komi einhver einvaldskonungur og ákveði launin, eins og það var einvaldskonungur, er ákvað þau 1843? Jeg er hræddur um, að þess geti orðið langt að bíða.

Þá sagði háttv. þm. V.-Sk., að það hefði ekki borið á því, að nýtir menn hefðu ekki fengizt til þingsetu vegna þess, hve launin væru lág. En hann veit ekkert um, hve margir nýtir menn kunna að sitja heima og vilja ekki fara á þing fyrir þessa smánarborgun. Með þessum lágu launum hefur lærður öreigalýður meiri hvöt til að sækjast eftir þingsetu, en hagsýnir dugnaðarmenn. Hann verður feginn hverri snöp. Jeg segi þetta ekki af neinni óvirðing fyrir þessum lýð. Jeg kenni í brjósti um hann. Hann er eðlileg afleiðing af því ástandi, sem nú ríkir í landinu.

Það væri auðvitað ágætt, að ástandið vor á meðal væri þannig, að það hefði ekki þurft að fara fram á þessa hækkun. Það væri ágætt, að hjer væri margir svo efnum búnir, að þeir hefðu efni á að vera að heiman og sitja á þingi 2—3 mánuði fyrir ekki neitt. En því er ekki að heilsa. Og það er eftirtektavert, að aðrar þjóðir hækka nú kaup þingmanna sinna allmikið, t. d. Danir hækkuðu kaup þingmanna sinna fyrir nokkrum árum úr 6 kr. upp í 10 kr., Englendingar gjalda þingmönnum ekkert kaup, en nú er talað um, að fara að launa þá. Og eftir því sem atvinnuvegum vorum fer fram og fleiri leiðir verða færar til arðsamrar atvinnu, því minni eru líkindin til, að duglegir og nýtir menn fáist til þingsetu fyrir þetta kaup.

Jeg skammast mín alls ekki fyrir að hafa flutt þetta frumv. inn á þingið, þótt jeg kunni að fá á baukinn hjá kjósendum mínum fyrir það, Jeg lít á það, hvað er rjett og ráðlegt, en ekki það, sem kann að vera vilji kjósandanna, er svo stendur á, sem hjer. Mjer hefur aldrei látið það, að slá á þá strengi, er þröngsýnum kjósendum þykja hljómfegurstir. Jeg álít, hvort sem það eru embættismenn eða aðrir opinberir starfsmenn, að hverri þjóð sje minkun að því, að launa þá svo, að flest önnur störf verði ábatavænlegri. Og jeg skal taka það fram hjer, — þótt það muni láta illa í margra eyrum, en mjer er sama, þótt það fari um land alt —, að jeg álít, að laun margra embættismanna sjeu of lág, og að það verði að hækka þau. Þótt laun embættismanna sjeu miðuð við annað ástand og miklu yngra en þingfararkaupið er miðað við, er samt ástæða til að hækka mörg þeirra. Þetta kemur af auknum þörfum og af því, að flest er nú dýrara, en þegar launin voru ákveðin.

Það getur vel verið, að tillögur og framkoma þingmanna verði eigi betri nje viturlegri, þótt dagpeningar þeirra hækki um 3 kr. En ef miða ætti allar launahækkanir við það, að meiri trygging væri fyrir, að starfs- og embættismenn landsins yrðu vitrari og gegndu betur störfum sínum, þá er jeg hræddur um, að lengi mætti bíða eftir launahækkunum, t. d. ef það ætti ekki að hækka laun sýslumanna, nema því aðeins að trygging væri fyrir, að þeir ræktu þá betur starf sitt og stöðu. — Mjer þótti auðvitað gott að hlýða á sparnaðarhugvekju hins háttv. þm. V.-Sk. Og jeg þykist vita, að hann muni eftir þessu á næsta þingi, þegar á að fara að greiða atkvæði um ýmsa útgjaldaliði fjárlaganna, t. d. um brú á einni ánni í kjördæmi hins háttv. þm., sem er eitt hið mesta flónskufyrirtæki, er rætt hefur verið á alþingi; það er meiri þörf á að ganga þar á undan með góðu eftirdæmi, heldur en hamast á móti launahækkun, sem nemur ekki meira en 5—6 þús. kr. — alls — til þingmanna.

Jeg skal taka það fram, fyrir sjálfs míns hönd, að mjer hefði ekki komið í hug að fara fram á þessa breyting, ef þingtíminn hefði ekki verið fluttur til sumarsins. Jeg þykist vera svo kunnugur kjörum íslenzkra bænda, að mjer sje óhætt að fullyrða, að það sje mikill munur á því fyrir þá, að vera að heiman um háanna tímann, heldur en að vetrinum til.

Jeg held, að jeg þurfi ekki að tala lengur að þessu sinni.