15.08.1912
Efri deild: 25. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 217 í B-deild Alþingistíðinda. (223)
59. mál, þingfararkaup alþingismanna
Guðjón Guðlaugsson:
Jeg þarf ekki að segja mikið í þessu máli við þessa umræðu, því jeg hef talað við 2. umræðu málsins um breyttill. við ferðakostnaðinn.
Jeg álít, að það sje ekki rjett ályktað, að það komi í sama stað niður hvað kostnaðinn snertir, hvort þingmenn utan Reykjavíkur fá 9 kr. á dag frá því þeir fara að heiman og þangað til þeir koma aftur heim, eins og frumv. fer fram á, eða 8 kr. að viðbættum 2 kr. um sjálfan þingtímann, eins og br.till. fer fram á. Því þessi 2 kr. mismunur á kaupi þingmanna snertir að eins þann tíma, er þeir dvelja á þingstaðnum, og eftir skýrslu, sem fylgir frumv., eru þingmönnum utan Reykjavíkur ætlaðir 377 dagar til ferðalaga; við það sparast þá 377 kr., um leið og laun þingmanna utan Reykjavíkur lækka jafnframt, og kemur því hækkunin niður á hinum.
Mismunurinn á kaupi þingmanna kemur þannig að eins fram um þingtímann, en samkvæmt frumv. óbreyttu náði hann yfir allan tímann frá því þingmenn fóru að heiman og þangað til þeir komu aftur heim.
En eins og jeg áður hef tekið fram, þá er í 2. gr. frumv. gert ráð fyrir 2 kr. á dag til ýmislegs smákostnaðar á ferðalaginu,
Jeg sje því ekkert mæla á móti því, að laun allra þingmanna sjeu jöfn eða 8 kr. á dag, nema hvað þingmenn utan Reykjavíkur fái (sbr. brtill.) þessa 2 kr. aukaþóknun á dag um sjálfan þingtímann, sem eru í rauninni sömu 2 kr., og þeir hafa í 2. gr. innifaldar í ferðakostnaðinum. Á þingstaðnum er það ætlað einkum fyrir húsaleigu, þjónustu o. fl., sem búsettir menn hjer þurfa ekki að borga út.