26.08.1912
Efri deild: 37. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 42 í B-deild Alþingistíðinda. (29)

5. mál, eftirlit með skipum og bátum

Ágúst Flygenring (framsögumaður):

Frumv. þetta er eins og þegar það fór frá háttv. deild, nema hvað háttv. neðri deild hefur gert við það dálitlar breytingar.

En breytingar þessar eru að eins óverulegar orðabreytingar, en engar efnisbreytingar. Aðalbreytingin er sú, að feld hefur verið burtu tilvitnunin í siglingalögin — 75. gr. þeirra — og er það eðlileg afleiðing af því, að siglingalögin hafa ekki náð framgangi nú á þinginu, verða ekki útrædd. Hinar breytingarnar eru gagnslausar og fáfengilegar orðabreytingar, og geta ekki talizt til bóta, nema hvað þær leiðrjetta tvær prentvillur, sem höfðu slæðzt inn í frumv.

Þar sem því frumv. er að eðli sínu eins og þegar það fór hjeðan úr háttv. deild, þá leyfi jeg mjer, fyrir nefndarinnar hönd, að mæla með því að það verði samþ.