16.08.1912
Efri deild: 26. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 266 í B-deild Alþingistíðinda. (297)
19. mál, verðtollur
Jens Pálsson:
Jeg vil að eins leyfa mjer út af orðum háttv. 2. kgj. þm. geta þess, að jeg þegar þykist hafa fært fullgildar ástæður fyrir hinni rökstuddu dagsskrá, og ein höfuðorsökin er sú, að fyrir háttv. Nd. liggur enn frv. líks eðlis, sem vjer höfum enn eigi haft tíma nje tækifæri til að kynna okkur. Mjer er þetta í rauninni ekkert kappsmál, en þar sem nú er ekki eftir nema einungis vika af þingtímanum, þá virðist mjer sem gæta þurfi allrar varfærni. En jeg treysti svo vel áhuga hinna háttv. þingmanna, að þeir láti ekki lítilfjörlegan skoðunarmun á þessum velferðarmálum, valda slíkum glundroða, að til vandræða horfi.
En það, sem aðallega veldur því, að dagsskráin er fram komin, eins og jeg áðan tók fram, er aðallega það, að jeg hygg, að þingmönnum verði hægra fyrir að botna í þessum vandamálum, ef þeim fækkar að mun, — hægra að ákvarða sig, þegar eftir verða að eins 2 leiðir um að velja í stað fjögra.