16.08.1912
Efri deild: 26. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 267 í B-deild Alþingistíðinda. (299)
19. mál, verðtollur
Sigurður Stefánsson:
Mönnum þykir ef til vill undarlegt, að jeg skuli standa upp í þessu máli, til að segja það, sem jeg nú ætla að segja, því að sjaldan hef jeg staðið upp hjer á þingi til að taka málstað stjórnarinnar.
Jeg býst sem sje við, að samþykkja þessa rökstuddu dagskrá.
Eins og allir vita, hefur stjórnin aldrei á neinu þingi haft eins mikinn flokk og nú, þar sem 3/4 þingsins hefur heitið henni fylgi sínu. Hæstv. ráðherra hefur lýst yfir því í Nd., að þetta frumv. sje það lang óaðgengilegasta af öllum slíkum, er fyrir þinginu liggja. Þegar nú hann, maðurinn, sem hafa á alla ábyrgðina á framkvæmd laganna, lýsir þessu yfir, þá er það óneitanlega óviðfeldið af þinginu, að samþykkja einmitt það frv., sem hann telur óaðgengilegast og mestum vandkvæðum bundið að framkvæma.
Væri jeg í stjórnarsessi, mundi jeg telja samþykt þessa frumv. undir þessum kringumstæðum, hreina og beina vantraustsyfirlýsing.