19.08.1912
Efri deild: 28. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 288 í B-deild Alþingistíðinda. (321)

69. mál, prestssetrið Presthólar

Sigurður Stefánsson:

Jeg get tekið undir með háttv. 4. kgk. þm., að 3. manna. nefnd sje sett í málið; hin langa ræða, sem hann hjelt, gaf tilefni til ýmissa frekari hugleiðinga.

En eftir því, sem jeg hef getað kynzt málavöxtum, finst mjer nokkur sanngirni mæla með því, að maðurinn fái jörðina keypta. Annars ætla jeg, að geyma mjer til 2. umr að tala frekar um málið, því jeg býst við, að háttv. deild felli það ekki nú þegar.